Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 01. júlí 2008 07:00
Magnús Már Einarsson
3.deild: Hvað er að frétta af Spyrni?
Oliver Bjarki Ingvarsson.
Oliver Bjarki Ingvarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Úr leik hjá Spyrni.
Úr leik hjá Spyrni.
Mynd: Austurglugginn/Gunnar Gunnarsson
Njáll Eiðsson í leik með Spyrni.
Njáll Eiðsson í leik með Spyrni.
Mynd: Agl.is - Gunnar Gunnarsson
Mynd: Spyrnir
Mynd: Austurglugginn/Gunnar Gunnarsson
Mynd: Spyrnir
Mynd: Austurglugginn/Gunnar Gunnarsson
Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.

Að þessu sinni er ferðinni heitið Austur og stemningin er skoðuð hjá Spyrni í Fellabæ en liðið leikur í 3.deildinni.

Oliver Bjarki Ingvarsson þjálfari Spyrnis svaraði nokkrum laufléttum spurningum.


Hvernig er stemmningin hjá Spyrni þessa dagana?
Hún er að vanda góð. Héraðsbúar eru glaðmildir gæskar af náttúrunnar hendi sem að njóta lífsins þrátt fyrir töp í fótboltaleikjum og slæmt veður. Enda ekki annað hægt þegar að maður býr á perlu Íslands, Egilsstöðum.

Hvernig er leikmannahópurinn uppbyggður?
Hann er uppbyggður af 13 ungum lánsmönnum frá Hetti í bland við leikmenn sem annaðhvort hafa ekki komist í hópinn hjá Hetti eða hreinlega hafa ekki tíma til að vera með á fullu. Aldursmunurinn á þessum leikmönnum er töluverður, yngsti leikmaður liðsins er til að mynda 17 ára og sá elsti fimmtugur.

Er liðið í miklu samstarfi við Hött?
Samstarfið er þónokkuð. Höttur er í raun eins og góð móðir fyrir okkur, sér um að skaffa okkur bolta, keilur, vesti og allt sem þarfnast til æfinga og leikja. Síðan gerum við okkar besta til að þróa leikmenn fyrir Hött, sem að vonandi munu verða framtíðar leikmenn félagsins á næstu árum. Svo má náttúrlega ekki gleyma því að þjálfari, aðstoðarþjálfari, liðsstjóri og formaður Hattar eru allir í leikmannahópi Hattar. Þannig að þessi lið eru mjög tengd sem er bara hið besta mál.

Njáll Eiðsson þjálfari Hattar lék síðasta leik með ykkur. Má búast við að hann taki fleiri leiki í sumar?
Kallinn hefur fengið alltof mikla umfjöllun útaf þessu, sem að ég er svolítið hræddur um að muni bitna á leik hans. Hann sagði fyrir leikinn að hann ætlaði bara að spila fyrstu 45 mín en neitaði síðan að fara útaf í hálfleik! Í stöðunni 6-1 fyrir andstæðingunum kom hann loks til mín og bað um skiptingu. En sá gamli stóð sig vel og hljóp manna mest í leiknum enda í feikna formi, hann var til fyrirmyndar hvað baráttu varðar allavega.
Það má alveg búast við því að hann spili fleiri leiki, allavega er hann búinn að lýsa því yfir í fjölmiðlum að hann geti ekki hætt eftir svona slæmt tap. Þannig að ég býst við honum í næstu leikjum, já.

Eru fleiri reynsluboltar í liðinu?
Við erum með nokkrar kempur hjá okkur eins og t.d. leikjahæsta mann Hattar frá upphafi, Harald Clausen, sem að spilaði á miðjunni með Njalla í síðasta leik. Halli er á 38 aldursári en spilar eins og tvítugur ungfoli. Svo urðum við að gera eina undantekningu þegar að leikmannahópurinn var settur saman og það var að leyfa einum fjarðarbúa að vera með. Berg Valdimar Sigurjónsson heitir hann og er mest þekktur fyrir að sjá um tennur bæjarbúa, enda menntaður tannlæknir. Valdi er frábær karakter sem að hefur fallið mjög vel inn í hópinn. Hilmar Gunnlaugsson, formaður rekstrarfélags Hattar og fyrrverandi fyrliði liðsins er líka búinn að bursta rykið af skónum og vonumst við til þess að hann gefi kost á sér þegar á er þörf.

Svo má ekki gleyma aðstoðarþjálfaranum okkar, Guðmundi Bj. Hafþórssyni a.k.a Dúllarinn, sem að tók fram takkaskóna á ný eftir 6 ára pásu frá boltanum. Hann er mest þekktur fyrir að líkjast Jan Mölbye í leikstíl og fyrir að vera besti vinur Ívars Ingimars.
Svo vorum við með elsta leikmann Íslandsmótsins í herbúðum okkar, en hann meiddist því miður stuttu fyrir fyrsta leik og er að mér skilst ekki ennþá búinn að jafna sig á meiðslunum. Haukur Kjerúlf heitir hann og getur státað af því að hafa verið á toppi ferilsins með Spyrni þegar að liðið lék síðast á Íslandsmótinu, í kringum 1970. Sonur hans er Eysteinn Hauksson, miðjumaður í Grindavík, en hann var á óskalista þjálfara fyrir tímabilið. Pælingin var að taka smá Arnór og Eiður á þetta, en því miður strönduðu samningsviðræður stuttu fyrir mót.

Svo er ég að vonast til að þjálfari Hugins í fyrra, Gummi Magg, komi til okkar seinni part sumars. Heyrst hefur að hann sé rosalegur í löngu sprettunum!

Ertu sáttur við byrjun ykkar í sumar?
Bæði já og nei. Ég er sáttur með spilamennskuna á köflum, en stöðugleikinn hefur ekki verið nægilegur. Við unnum tvo fyrstu leikina okkar gegn Huginn og Leikni F. en fengum svo ljótan skell gegn Sindra í bikarnum. Við höfum verið að skapa okkur fullt af færum í leikjunum en ekki náð að uppskera nógu mikið af mörkum. Þetta toppaði sig í 2-1 tapi gegn Sindra, nokkrum dögum eftir skellinn í bikarnum, þar sem að markvörður þeirra átti leik lífs síns. 43 ára að aldri! Sá heitir Harjudin Cardaklija og er hreint út sagt óþolandi góður markvörður.

Ég er samt sannfærður um að við munum rétta úr kútnum í næstu leikjum og byrja að taka stig af hinum liðunum. Ef ekki verð ég líklegast rekinn af spilandi formanni liðsins, hann er grjótharður!

Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Klárlega hinn gullfallegi hópur fólks sem hefur verið að mæta og hvetja okkur úr stúkunni ásamt fallegum liðsstjórum og leikmönnum. Knattspyrnulega séð erum við með léttleikandi lið í bland við reynslu (Njáls og Halla) og baráttu. Ef við náum að fá fram þessa hluti samtímis eigum við að geta unnið öll liðin í riðlinum.

Hvert er markmið liðsins í sumar?
Markmið félagsins er að þróa og gera ungu leikmenn Hattar betri svo þeir geti komið sterkir inn í Hattarliðið í framtíðinni. Persónulegt markmið mitt var að vinna alla heimaleikina, en því miður brást það markmið í síðasta heimaleik gegn Dalvík. Ef ég á að nefna markmið annarra, þá hefur formaðurinn sett sér það markmið að skora með hægri á þessu tímabili. Annað hvort á æfingu eða í leik, því miður verður það að teljast frekar óraunhæft markmið en kraftaverk hafa gerst áður.

Hefur eitthvað komið þér á óvart í upphafi 3.deildarinnar?
Nei, seyðfirðingar eru ennþá með pirrandi góðan stuðningsmannahóp og það er ennþá jafn langt á Höfn.

Hvaða lið telur þú að sé sigurstranglegast í deildinni?
Sindri eru klárlega með sterkasta lið riðilsins. Þrátt fyrir að hafa misst sinn öflugasta leikmann í fyrra, Björn Páls (af hverju komstu ekki til Hattar drengur?) þá hafa þeir náð að styrkja liðið sitt með góðum útlendingum. Ég býst við þeim og BÍ/Bolungarvík sem sigurstranglegustu liðum deildarinnar. Ætli úrslitaleikurinn verði ekki á milli þessara tveggja liða, þar sem að Geiri Gudjohnsen skorar sigurmarkið fyrir BÍ á síðustu mínutu leiksins eftir langt útspark frá Dóra Skarp.

Eitthvað að lokum?
Mig langar til að þakka fotbolta.net fyrir að halda út frábærri síðu, hún er í heimsklassa. Svo langar mig einnig til að biðja fjarðarbúa afsökunar á ummælum mínum hérna fyrir ofan, þetta var djók og því algjör óþarfi að leita mig uppi. Svo að lokum þá verð ég að leiðrétta það sem ég sagði um markmið formannsins, hann skoraði með hægri á síðustu æfingu og er jafnfættur (að eigin sögn). Besti formaður í heimi.
Áfram Spyrnir og Höttur!!


Eldra úr liðnum hvað er að frétta?

1.deild:
KA (27.júní)
KS/Leiftur(3.apríl)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
Þór (27.júní)

2.deild:
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)

3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)
Slapp
banner
banner