Heimild: Heimasíða Fjölnis
Hrefna Lára Sigurðardóttir og Helena Konráðsdóttir hafa gengið til liðs við kvennalið Fjölnis en þær koma báðar upprunarlega úr Fjölni.
Hrefna er varnarmaður og kemur tilbaka frá Danmörku en áður hefur hún spilað 33 leiki með Fjölni bæði í Landsbankadeildinni og 1.deildinni. Hrefna hefur spilað bæði á hægri kant og sem hægri bakvörður og er að koma sér í gang eftir meiðsli.
Helena kemur frá HK/Víking en hún skipti yfir í Víking fyrir tímabilið í fyrra. Helena hefur alls spilað 63 leiki í Landsbankadeildinni og 1.deildinni og skorað í þeim 11 mörk.
Fjölnisliðið er með mjög þunnskipaðan leikmannahóp og er þetta því kærkomið viðbót fyrir liðið sem er í neðsta sæti deildarinnar með aðeins 5 stig eftir 11 leiki.
,,Hrefna er að koma sér í gang eftir meiðsli og Helena er að koma tilbaka frá HK/Víkingi. Þær koma til með að styrkja hópinn og gefa mér fleiri möguleika til að gera breytingar.” sagði Theódór Sveinjónsson þjálfari Fjölnis þegar við spurðum hann út í leikmennina tvo.
,,þetta eru svona baráttuhundar með Fjölnishjarta. Við erum reyndar enn að bíða eftir leikheimild fyrir Hrefnu frá Danmörku, hún er ekki enn komin” bætti Theódór við.
Fjölnir er sem stendur í neðsta sæti Landsbankadeildar kvenna með aðeins 5 stig eftir 11 leiki en þær hafa bara unnið 1 leik í sumar. Theódór segist vilja styrkja leikmannahópinn áður en að félagaskiptaglugginn lokar aftur.
,,Við erum að leita að fleiri leikmönnum til að styrkja okkur. Við erum með augun og eyrun opin þar sem við þurfum meiri breidd í liðið, mig vantar tilfinningalega mikið miðjumann” sagði Theódór að lokum í samtali við Fótbolta.net í kvöld.


