Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 08:00
Magnús Már Einarsson
Ummæli vikunnar
Geir H. Haarde.
Geir H. Haarde.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þá er komið að ummælum vikunnar en nokkur skemmtileg ummæli litu dagsins ljós í íslenska boltanum í vikunni.

Ef þið lesendur góðir hafið góð ummæli megið þið endilega senda tölvupóst á [email protected]


,,Ég hætti þegar ég var þrettán ára. Ég var kominn upp í fjórða flokk C, sem gekk undir nafninu ruslið og ég hætti, ég sá ekki fram á mikla velgengni í þessu."
Geir H. Haarde forsætisráðherra í viðtali á Fótbolta.net um fótboltaferil sinn.

,,Ég veit allavega að á stuttu ferðinni upp á spítala nefndi ég við mömmu mína hvað ég ætlaði aldrei að fæða henni nein barnabörn þar sem þetta væri svo vont og þó bara hnéð og ég gæti því ekki ímyndað mér hversu fjári vont það væri að fæða krakka."
Gréta Mjölll Samúelsdóttir eftir að hafa slitið krossband.

,,Hann var fyrirliði FH í mörg ár og heldur ennþá að hann sé besti leikmaður FH fyrr og síðar sem er algjört kjaftæði."
Davíð Þór Viðarsson fyrirliði FH gegn Grevenmachen frá Lúxemburg um karl föður sinn, Viðar Halldórsson.

,,Það er óhætt að segja að við höfum sigrað vegna einstaklingsframtaks hjá Boban Jovic, hann er stundum eins og Maradona,“
Zoran Miljkovic þjálfari Selfyssinga í viðtali við Morgunblaðið.

,,Það er komin mun meiri alvara í túttuboltann en var áður."
Edda Garðarsdóttir leikmaður KR .

„Ég var að renna eftir einhverjum tilboðum en þau voru ekki merkileg þannig að ég skilaði því bara."
Tryggvi Guðmundsson við Fótbolta.net eftir sigur liðsins á HK en dagblað fauk inná völlinn í miðjum leik. Tryggvi gluggaði í blaðið áður en hann henti því út af vellinum.

,,Ef að ég skora fimm mörk hafa Ivan Milenkovic og Milos Glogovac lofað að gifta sig strax í september. Þeir eru með flottum íslenskum stelpum og eru búnir að ákveða að gifta sig og ef ég skora fimm mörk eru þeir búnir að lofa að gifta sig strax."
Sinisa Kekic í viðtali á Fótbolta.net eftir að hann gekk í raðir HK.
Slapp
banner