Heimild: BBC
George McCartney leikmaður Íslendingafélagsins West Ham hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið.
Í síðasta mánuði höfnuðu West Ham 4,5 milljóna punda tilboði Sunderland í varnarmanninn.
Þessi 27 ára gamli Norður-Íri kom til West Ham frá Sunderland fyrir um tveimur árum fyrir eina milljón punda.
McCartney, sem er varnarmaður hefur spilað sextíu leiki fyrir West Ham og skorað í þeim eitt mark.


