Eva Núra Abrahamsdóttir kom inná í lið Fylkis og stóð sig mjög vel. Hún varð fjórtán ára gömul á árinu og leikur með 4. flokki félagsins.
Afturelding 1-0 Fylkir
0-1 Mist Edvardsdóttir ('78)
Sjá einnig:
Gareth: Enn einn markaleikurinn hjá Aftureldingu
Björn Kristinn: Ekki mörg lið sem geta misst 9 leikmenn
Afturelding tefldi fram fjórum af fimm nýjum leikmönnum liðsins í byrjunarliði í kvöld og sá fimmti kom inná sem varamaður og því lið þeirra orðið nokkuð breytt frá því fyrr í sumar. Agnes Þóra Árnadóttir, Andrea Ýr Gústavsdóttir, Anna Garðarsdóttir og María Rós Arngrímsdóttir léku allar sinn annan leik með liðinu Bryndís María Thedórsdóttir sinn fyrsta.
Hjá Fylki voru mikil vandræði með að manna liðið og munaði mikið um að Lovísa Sólveig Erlingsdóttir gat ekki leikið í kvöld vegna veikinda og Norður Írarnir Sarah McFadden og Ashley Hutton voru frá þar sem þær leika með landsliði sínu í vikunni.
Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu og lítið var um færi eins og svo oft hefur verið um leiki Aftureldingar í sumar þar sem mörkin eru gjarna af skornum skammti.
Fyrsta hættan skapaðist við mark Aftureldingar um miðjan fyrri hálfleikinn þegar Brett Maron markvörður liðsins náði ekki að festa hendur á boltanum út við vítateigslínu og hann barst út úr teignum. Varnarmenn Aftureldingar reyndu að hreinsa út en skutu í Laufey Björnsdóttur og þaðan endurkastaðist boltinn að markinu en Maron var þá komin til baka og greip boltann.
Hinum megin á vellinum var Agnes Þóra Árnadóttir nærri því að skora nokkrum mínútum síðar. Hún sneri þá á einn varnarmann Fylkis og lék inn í vítateiginn þar sem hún þrumaði að marki en boltinn small í þverslá.
Elín Svavarsdóttir átti eftir rúmlega hálftíma leik þrumuskot að marki Fylkis sem einnig endaði í þverslánni og skömmu síðar var Agnes Þóra komin í dauðafæri eftir sendingu Elínar en Guðrún Anna Atladóttir markvörður Fylkis varð henni fyrri til.
Fylkir gerði eina breytingu í hálfleik þegar Lára Björg Gunnarsdóttir kom inn fyrir Elsu Petru Björnsdóttur. Innkoma Láru byrjaði með látum því nokkrum sekúndum eftir að síðari hálfleikurinn hófst átti hún bylmingsskot sem fór í þverslá. Hinum megin á vellinum varði Guðrún Anna hættulegt skot Christu Mann eftir rúmlega tíu mínútna leik.
Liðin skiptust á að sækja og fengu bæði sín færi í leiknum. Eftir um klukkutíma leik fengu bæði lið ákjósanleg færi á sömu mínútunni. Fyrst þegar Agnes Þóra átti góða sendingu á Andreu Ýr Gústavsdóttur en skot hennar var varið og hinum megin átti Ruth Þórðar Þórðardóttir gott skot sem fór rétt framhjá.
Einhver pirringur hafði á þessu tímabili myndast milli leikmanna liðanna og tvívegis Ingvar Örn Gíslason dómari leiksins leikmenn til sín og fundaði með þeim og bað þá að róa sig.
Litlu munaði að Lára Björg kæmi Fylki yfir þegar um 20 mínútur voru eftir af leiknum er Laufey Björnsdóttir lék upp að endamörkum og þrumaði fyrir markið þar sem boltinn hafði viðkomu í varnarmanni en sigldi framhjá marki Fylkis og Láru sem var í dauðafæri og í horn.
Á 78. mínútu náði Afturelding svo forystunni í leiknum. Elín Svavarsdóttir átti þá frábæra sendingu af vinstri kantinum fyrir markið þar sem varamaðurinn Mist Edvardsdóttir stangaði boltann í netið.
Eftir markið sótti Fylkisliðið mun meira og voru óheppnar að jafna ekki metin. Björk Björnsdóttir markvörður Fylkis hafði komið inná sem varamaður í búningi útileikmanns og lék framlínunni eins og hún hefur gert áður. Hún átti góða sendingu fyrir markið af hægri kanti á Lizzy Karoly sem skaut framhjá á lokamínútum leiksins og þegar tvær mínútur voru eftir varði Brett Maron glæsilega þrumuskot að markinu.
Lokastaðan 1-0 fyrir Aftureldingu í miklum baráttuleik. Athygli vakti í liði Fylkis þegar Eva Núra Abrahamsdóttir kom inná sem varamaður. Eva varð 14 ára gömul á árinu og leikur með fjórða flokki félagsins. Vegna vandræða Fylkis með leikmenn fékk hún tækifærið í kvöld og nýtti það mjög vel og barðist vel og fór óhikandi í allar tæklingar en hún spilaði síðustu 10 mínútur leiksins.
Afturelding 4-4-2:
Brett Maron, María Rós Arngrímsdóttir, Gígja Heiðarsdóttir, Christa Mann, Bryndís M. Theodórsdóttir, Andrea Ýr Gústavsdóttir, Aldís Mjöll Helgadóttir (Anna Garðarsdóttir '66), Carrie Smith, Elín Svavarsdóttir, Linda María Sönnerborg (Anna Lovísa Þórsdóttir '74), Agnes Þóra Árnadóttir (Mist Edvardsdóttir '66).
Ónotaðir varamenn: Sigríður Þóra Birgisdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir, Sandra Dögg Björgvinsdóttir, Erla Edvardsdóttir.
Fylkir 4-4-2:
Guðrún Anna Atladóttir, Eyrún Huld Harðardóttir, Ragna Björg Einarsdóttir, Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir, María Kristjánsdóttir, Elsa Petra Björnsdóttir (Lára Björg Gunnarsdóttir '46 - , Eva Núra Abrahamsdóttir '81) Sara Sigurlásdóttir, Laufey Björnsdóttir, Tinna B. Bergþórsdóttir, Lizzy Karoly, Ruth Þórðar Þórðardóttir (Björk Björnsdóttir '81).
Ónotaðir varamenn: Björk Björnsdóttir, Lovísa Sólveig Erlingsdóttir, , Hanna María Jóhannsdóttir, Rut Kristjánsdóttir.




