Heimild: Sky
Stuðningsmenn Aston Villa púuðu á Gareth Barry leikmann liðsins þegar liðið vann Walsall í æfingarleik í gær.
Barry sem vill ólmur fara til Liverpool lék í gær sinn fyrsta leik á undirbúningstímabilinu.
Í hvert skipti sem hann snerti boltann púuðu flestir stuðningsmenn Villa á hann áður en honum var skipt af velli í síðari hálfleik.
Aston Villa hvíldi nokkra af sínum lykilmönnum en Alex Nicholls tók forystuna og Shaun Maloney skoraði hin tvö mörkin í 3-2 sigri.



