Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Æfingaleikir: Man Utd með sigur en Liverpool gerði jafntefli
Lee Martin skoraði eina mark Manchester United í sigri á Orlando Pirates í Vodacom Challenge.

Markið kom um miðbik fyrri hálfleiks en margir ungir leikmenn byrjuðu hjá Manchester United í leiknum.

Wayne Rooney, Ryan Giggs, Gary Neville, Paul Scholes og Nemanja Vidic byrjuðu allir á bekknum en Wes Brown spilaði allan leikinn en hann heldur til Englands í dag þar sem systir hans lést á meðgöngu.

Þá gerði Liverpool markalaust jafntefli við Hertu Berlin þar sem Andriy Voronin misnotaði vítaspyrnu.
Slapp
banner
banner
banner