Heimild: Sporting Life
John Terry fyrirliði Chelsea er ánægður með það hungur sem nýr stjóri liðsins, Luiz Felipe Scolari er með.
Scolari tók við í sumar af Avram Grant sem hafði stjórnað liðinu í nokkra mánuði eftir að Jose Mourinho var rekinn.
,,Liðið ætlar sér að vinna ensku úrvalsdeildinni og fleiri titla," sagði Terry.
,,Þegar þú sérð hungrið í nýja stjóranum og liðið sem hann hefur komið með þá verður þú hungraður líka," sagði Terry sem sagðist enn hugsa um úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þar sem Terry klúðraði víti.
,,Í hvert skipti sem ég vakna á morgnana er þetta það fyrsta sem kemur upp í huga minn."





