Heimild: Sporting Life
Samir Nasri nýjasti leikmaður Arsenal er ánægður með nýja stjórann sinn, Arsene Wenger.
Nasri sem er franskur landsliðsmaður gekk í raðir Arsenal í sumar frá franska liðinu Marseille.
,,Stöðuleiki Wenger og baráttugleði heillar mig," sagði Nasri við France Football.
,,Við vitum að hann er að vinna til lengri tíma, ég held að hann hafi verið hér í 13 ár og það segir allt."
,,TIl að fullkomna leik minn var ég að leita af svona liði, ég vildi ekki fara til félags þrátt fyrir að það væri stórt þar sem allt gæti breyst á einum degi."




