Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 07:00
Hörður Snævar Jónsson
3.deild: Hvað er að frétta af Hvíta riddaranum?
Matthías Svavar Alfreðsson.
Matthías Svavar Alfreðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Mynd: Fótbolti.net - Anton Ari Einarsson
Þá er komið að liðnum "Hvað er að frétta?" hér á Fótbolti.net en þar tökum við púlsinn hjá liðum í fyrstu, annarri og þriðju deild.

Að þessu sinni er ferðinni heitið í Mosfellsbæ þar sem kíkt er á stemninguna hjá Hvíta riddaranum.

Matthías Svavar Alfreðsson svaraði nokkrum spurningum fyrir hönd liðsins og svörin eru hér að neðan.


Hvernig er stemmningin hjá Hvíta riddaranum þessa dagana?
Stemmningin í Hvíta Riddaranum er æðislega góð, liðið samanstendur af ungum og fantagóðum, fallegum strákum úr Mosfellsbænum og næsta nágrenni. Í æfingahópnum leynast gamalkunnir landsliðskappar frá mörgum heimshornum, en þeir neita víst að spila með liðinu í leikjum. Mætti vera betri mæting í sturtuna eftir æfingar samt, enn það er hápunktur kvöldsins á mörgum.

Hvernig er leikmannahópurinn uppbyggður?
Hvíti Riddarinn byggist aðallega á ungum og efnilegum heimamönnum, strákum sem enn eru gjaldgengir í annan flokk og leikmönnum sem eru nýgengnir upp. Einnig hafa nokkrir Fjölnisstákar bæst við hópinn, þar ber hæst að nefna Fritz úr ÍH sem er með mögnuðustu innköst sem sjást í boltanum í dag!

Er mikið samstarf milli Aftureldingar og Hvíta riddarans?
Get nú ekki sagt að það sé gífurlega mikið samstarf, en við fáum unga og spræka stráka úr 2. flokknum, sem eru bara að standa sig mjög vel.

Ertu sáttur við gengi ykkar í sumar?
Nei alls ekki, byrjuðum tímabilið hræðilega, vantaði lykilmenn í byrjun móts og skilaði það sér í lélegum úrslitum. En við erum að skora hvað, næst flest mörkin í þessari deild, þannig að það er augljóst mál að við þurfum að fara að verja markið betur til að ná góðum úrslitum. En það sem háir liðinu er aðallega reynsluleysi, allir leikmenn liðsins eru á aldrinum 17-24 þannig við erum bara að safna reynslu og verðum bara betri.

Hver er helsti styrkleiki ykkar?
Okkar helsti styrkleiki eru innköstin, við fengum hann Fritz frá ÍH og djöfull getur þessi drengur kastað, fer í heljarstökk og liggur við að boltinn fari útaf hinumegin á vellinum. Einnig get ég fullyrt að við erum með hröðustu sóknar og kantmenn í þessum riðli og ber þar hæst að nefna Arnór Þrastarson og Sindra Má Kolbeinsson, enginn varnarmaður á sjens í þessa leikmenn á góðum degi.

Hvaða leikmenn hafa staðið upp úr hjá Hvíta riddaranum þar sem af er tímabili?
Haha já klárlega Bjarni en hann er eini gæjinn sem er yfir 1,60 í liðinu.

Hvert er markmið liðsins í sumar?
Vinna leiki! Klára tímabilið með stæl.

Hefur eitthvað komið þér á óvart í fyrri hlutanum í 3.deildinni?
Nei nei þetta er alveg eins og ég spáði fyrir mót, skil bara ekki hvað Andri Janusson er að gera ennþá í 3 deildinni, þessi leikmaður er nokkrum klössum ofar.

Hvaða lið telur þú að sé sigurstranglegast í deildinni?
Verð að segja Bí/bolungarvík, stórir og sterkir strákar, líka fáránlega myndarlegir gæjar sko... ;)

Eitthvað að lokum?
Ég vill bara þakka stuðningsmanni liðsins Hönnu Símonardóttur kærlega fyrir að mæta og styðja við bakið á okkur án hennar væri Hvíti Riddarinn ekki til.


Eldra úr liðnum hvað er að frétta?

1.deild:
KA (27.júní)
KS/Leiftur(3.apríl)
Leiknir R. (15.júlí)
Njarðvík (13.mars)
Selfoss (29.maí)
Stjarnan 10.júní)
Þór (27.júní)

2.deild:
Afturelding (4.júlí)
Hamar (15.maí)
Höttur (29.apríl)
Hvöt (27.mars)
ÍR (4.júlí)
Reynir Sandgerði (23.maí)
Tindastóll (15.apríl)
Víðir Garði (23.maí)
Völsungur (6.mars)

3.deild:
Árborg (17.apríl)
Augnablik (24.júní)
Berserkir (8.apríl)
BÍ/Bolungarvík (18.júlí)
Dalvík/Reynir (11.júlí)
KB (13.maí)
KFR (24.apríl)
KFS (22.apríl)
KV (12.júní)
Knattspyrnufélag Garðabæjar (19.mars)
Leiknir Fáskrúðsfirði (17.júní)
Skallagrímur (20.maí)
Snæfell (5.júní)
Spyrnir (1.júlí)
Ýmir (24.júní)
Þróttur Vogum (6.maí)
Slapp
banner
banner
banner