Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 07:33
Davíð Örn Atlason
Heimild: Sky 
Ferguson hefur trú á Foster
Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að Ben Foster, markvörður félagsins gæti komist í enska landsliðið á ný þegar að hann hefur náð sér fullkomlega á meiðslum sínum, en hann sleit krossband í hné.

Foster spilaði sinn fyrsta landsleik snemma árs 2007 í vináttuleik gegn Spánverjum, en þá var hann á láni hjá Watford.

Hann sneri síðan aftur í herbúðir Manchester United fyrir síðasta tímabil og meiddist síðan fljótlega og missti af næstum öllu síðasta tímabili. Edwin van der Sar er aðalmarkvörður United og Foster verður í baráttu við hann á næsta tíambili, samkvæmt Ferguson.

,,Ég hef ennþá trú á því að Ben (Foster) verði landsliðsmarkvörður Englands á næstu árum," sagði Ferguson.

,,Við bjuggumst ekki við honum svona fljótt á síðasta ári og ég lét hann ekki í Evrópuhópinn okkar vegna þess."

Foster spilaði einn leik á síðasta tímabili, en hann var gegn Derby. Þá var Edwin van der Sar meiddur og Tomasz Kuszczak í leikbanni. Foster stóð sig með prýði og varði nokkrar góðar vörslur.

,,Þegar að ég sá frammistöðu hans gegn Derby sá ég smá eftir Evrópuákvörðuninni. Með hæfileikana sem að hann býr yfir gæti hann verið í baráttu um byrjunarliðssæti á næsta tímabili. Þetta eru góðar fréttir fyrir enska landsliðið," sagði Ferguson að lokum.
Slapp
banner
banner
banner