Keflavík 0-2 Breiðablik:
0-1 Hlín Gunnlaugsdóttir
0-2 Hekla Pálmadóttir
Keflavík hefur átt mjög erfitt uppdráttar í deildinni undanfarið og liðið hefur ekki unnið leik síðan 23.maí þegar þær spiluðu gegn Fylki í þriðju umferðinni
Leikurinn var mjög jafn og skemmtilegur allt frá upphafi til enda. Breiðablik hefði getað fengið dæmda vítaspyrnu í fyrri hálfleik en ekkert var dæmt en í seinni hálfleik hefði Keflavík einnig getað fengið dæmda vítaspyrnu.
Breiðablik spilaði undan þónokkrum vindi í fyrri hálfleiknum en náði ekki að nýta sér það að neinu viti. Það sást þónokkuð á báðum liðum að álagið var farið að segja til sín en liðin voru að spila sinn þriðja leik á átta dögum. Það var því nokkuð mikið um feilsendingar og ranga ákvörðunartöku.
Breiðablik fékk nokkur algjör dauðafæri í upphafi leiks en náði ekki að nýta þau. Staðan var markalaus þegar Magnús Jón Björgvinsson dómari flautaði til hálfleiks.
Í seinni hálfleik dró loksins til tíðinda þegar Hlín Gunnlaugsdóttir skoraði fyrir Breiðablik. Blikar fengu dæmda aukaspyrnu rétt fyrir utan teig eftir að dæmd var hendi á Dúfu Dröfn Ásbjörnsdóttur markvörð Keflavíkur. Fanndís Friðriksdóttir tók spyrnuna sem fór í vegginn og boltinn datt þaðan fyrir fætur Hlínar Gunnlaugsdóttur sem var ein á móti Dúfu í markinu og skoraði af mikilli yfirvegun.
Keflavíkurliðið sótti í sig veðrið en Elsa Hlín Einarsdóttir markvörður Breiðabliks átti góðan leik í markinu og varði oft og títt vel frá þeim.
Annað mark Blika kom rétt fyrir leikslok. Blikarnir áttu þá laglegt uppspil sem endaði með fyrirgjöf frá Fanndísi á vinstri kantinum beint á kollinn á Heklu Pálmadóttur sem hafði komið inná sem varamaður og hún skallaði boltann örugglega í netið.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum og lokatölur urðu því 2-0 Breiðablik í vil. Sigur Breiðabliks var langt frá því að vera auðveldur og var baráttuandi Keflavíkur til fyrirmyndar í þessum leik.
Keflavíkurliðið var allt annað en í síðustu leikjum og virðist nýr þjálfari liðsins, Ásdís Þorgilsdóttir vera að blása nýjum baráttuanda í sínar stúlkur.
Þrátt fyrir 2-0 tap átti Keflavíkurliðið fínan leik og voru óheppnar að fá ekki neitt út úr leiknum. Lið Breiðabliks er líka allt að komast á skrið en þetta var fimmti sigur liðsins í röð og liðið er nú að halda hreinu í sínum þriðja leik í röð.
Blikarnir eru því til alls líklegir ef þeir halda áfram á sömu braut.




