Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 00:34
Brynjar Ingi Erluson
Þorkell Máni: Við vorum massa góð
Kvenaboltinn
Þorkell Máni á línunni í kvöld
Þorkell Máni á línunni í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Þorkell Máni Pétursson, þjálfari Stjörnunar í Landsbankadeild kvenna var vitanlega mjög sáttur með þriggja marka sigur liðsins gegn Fjölni í Grafarvogi í kvöld.

,,Ég var mjög ánægður með mitt lið. Við vorum massa góð. Það var nett hátt spennustig, og þegar leikurinn var kominn í 3-0 þá var hann basically búinn og við vorum bara slakari á því," sagði Þorkell Máni í samtali við Fotbolti.net.

Leikjatörn Stjörnunar er mikil þessa daganna, en liðið leikur þrjá leiki á aðeins sex dögum. Það var leikurinn í kvöld, leikur gegn Þór/KA á föstudaginn og svo Afturelding í Mosfellsbænum á mánudag.

,,Við eigum þrjá leiki á sex dögum. Frábært að byrja svona og viið eigum eftir að fara á Akureyri og svo í Mosfellsbæinn. Þetta er alltof þétt törn, sem þýðir að þetta reynir á okkur að koma heilar úr þessi og standandi. Við erum í manneklu fyrir næsta leik og verður erfitt að knýja fram stig þar."

Máni var spurður út í hvort hann muni koma til með að styrkja leikmannahópinn eitthvað í tilefni þess að félagaskiptiglugginn opnaði í seinustu viku, en hann er ekki með neitt sérstakt á prjónunum.

,,Þegar það er góður leikmaður sem vill endilega kom til okkar þá erum við til í að hafa hann, en annars treystum við á þann hóp sem við erum með, en ef að það eru nægilega góðir leikmenn þá endilega," sagði Þorkell Máni að lokum.
Slapp
banner
banner