Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 09:00
Fótbolti.net
Viðtal - Dóra María: Allt liðið tekur virkan þátt í sóknarleiknum
Dóra María var valin besti leikmaðurinn að mati Fótbolta.net í umferðum 1-9
Kvenaboltinn
Dóra María með viðurkenningarskjal sem Fótbolti.net afhenti henni á æfingu með Val í dag.
Dóra María með viðurkenningarskjal sem Fótbolti.net afhenti henni á æfingu með Val í dag.
Mynd: Fótbolti.net
Dóra María í leik með Val í sumar.
Dóra María í leik með Val í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Guðmundsson
Dóra María Lárusdóttir er leikmaður fyrri umferðar að mati dómnefndar Fótbolta.net. Dóra María er 23 ára kantmaður sem hefur farið á kostum með liði sínu Val sem er enn með fullt hús stiga eftir 10 leiki.

Dóra hefur spilað 111 leiki með meistaraflokki Vals og skorað í þeim 60 mörk en hún er fæddur og uppalin Valsari. Dóra María er einnig lykilleikmaður í íslenska landsliðinu en hún á að baki 37 leiki og hefur skorað í þeim 7 mörk. Við settumst niður og ræddum við Dóru um deildina.

,, Já þessi útnefning kom mér skemmtilega á óvart og er auðvitað mikill heiður” sagði Dóra María þegar við spurðum hana hvort tilnefningin kæmi á óvart.

Dóra María hefur verið frábær í sumar, sjálf hefur hún skorað 6 mörk þar af sigurmarkið gegn KR sem fór 2-1 og 1-0 sigrinum á Aftureldingu í sumar. Hún hefur auk þess verið dugleg að leggja upp fyrir félaga sína. Við spurðum Dóru hvort væri betra að skora eða leggja upp

,,Það er alltaf gaman þegar Valur skorar og ekki verra að eiga þátt í mörkunum en hvort mér finnist skemmtilegra að leggja upp mörk eða skora þau sjálf er erfitt að svara. Í gegnum tíðina hef ég nú verið iðnari við að leggja upp en að skora en maður fær óneitanlega meiri athygli fyrir að koma boltanum yfir línuna.” sagði Dóra María.

Valsarar hafa skorað 45 mörk í deildinni í 11 leikjum sem eru 11 fleiri mörk en næsta lið KR. Við spurðum Dóru hvort að sóknarleikur Vals væri svona svakalega sterkur

,,Tölfræðin sýnir allavega að við erum með eitt sterkasta sóknarliðið í deildinni svo ég svara þessu játandi. Munurinn á okkur og mörgum öðrum liðum í deildinni er að allt liðið tekur virkan þátt í sóknarleiknum og ég held að það sé lykillinn að þeim fjölda marka sem við höfum skorað í sumar.” sagði Dóra María

Athyglisvert er einnig að hvorki fleiri né færri en 11 leikmenn hafa skorað mörk fyrir lið Vals í sumar það sem af er og virðist stærsti hluti liðsins alltaf líklegur til að skora. Við spurðum Dóru hvernig andstæðingurinn ætti að verjast þessu þar sem liðið hefur verið að skora í öllum regnbogans litum úr öllum áttum.

,,Við höfum verið að skipta þessu vel á milli okkar sem sýnir ákveðinn styrkleika. Ef ég væri andstæðingur Vals myndi ég forðast eins og ég gæti að gefa okkur hornspyrnur því við erum rosalegar í hornspyrnum með Pálu Marie og Kötu Jóns þar fremstar í flokki. En það er nú reyndar ekki mitt að segja hvernig andstæðingurinn á að taka á sóknarleik okkar.” sagði Dóra María

Valsliðið hefur ekki tapað leik í sumar, við spurðum Dóru hvort það væri erfitt að mótivera sig fyrir hvern einasta leik og hvort það væri ekki bara orðin sjálfsagður hlutur að vinna hvern leik.

,,Við reynum að koma vel undirbúnar í alla leiki. Það segir sig sjálft að við erum aldrei búnar að vinna leik fyrirfram og höfum þurft að hafa fyrir hlutunum í leikjum hingað til þannig að við þurfum að vera á tánum í hverjum einasta leik. “ sagði Dóra

Dóra María hefur farið síðustu sumur til náms í Bandaríkjunum og ekki náð að klára tímabil með Val í þrjú ár

,,Það verður frábært að fá loksins að klára heilt tímabil þó það verði líklega viðbrigði og viss söknuður í því að vera ekki að fara út.” sagði Dóra María um hvernig það verður að klára loksins heilt tímabil.

Við spurðum síðan leikmann umferðanna hvernig henni finnst deildin hafa verið það sem af er, hvort eitthvað kæmi meira á óvart en annað.

,,Að mínu mati hefur deildin farið skemmtilega af stað í ár. Leikirnir hafa verið mun jafnari en áður sem gerir deildina bara skemmtilegri og áhugaverðari. Ekkert sem kemur þannig séð á óvart en mér finnst sérstaklega ánægjulegt að sjá til liðs Aftureldingar” sagði Dóra María

Mjög mismunandi raddir hafa heyrst um dómgæsluna í sumar og spurðum við Dóru út í það

,,Það eru alltaf einhver vafaatriði en heilt yfir finnst mér dómgæslan hafa verið mjög góð.” sagði Dóra María um dómgæsluna í sumar

Að lokum spurðum við Dóru Maríu hvernig henni fyndist umfjölluninn um deildina hafa verið í sumar

,,Fréttaflutningur fotbolta.net hefur verið til fyrirmyndar með góðum og ítarlegum umfjöllunum og viðtölum eftir og jafnvel fyrir alla leiki. En aftur á móti finnst mér oft sorglega lítil umfjöllun um leikina í blöðunum þar sem yfirleitt er bara einn leikur tekinn fyrir í hverri umferð ef þó það. RÚV hefur staðið sig betur en oft áður en það má alltaf gera betur.” sagði Dóra María leikmaður fyrri umferða við Fótbolta.net í dag.

Fótbolti.net þakkar Dóru Maríu fyrir viðtalið og óskar henni innilega til hamingju með útnefninguna.
Slapp
banner
banner
banner