Theodór Sveinjónsson, þjálfari Fjölnis í Landsbankadeild kvenna var allt annað en sáttur með sitt lið í kvöld þegar það lá 0-3 fyrir Stjörnunni í Grafarvogi.
,,Stjarnan kom hér til að vinna, við byrjuðum ekki hér til að vinna. Við vorum kærulausar vorum ekki að elta mennina okkar. Tvö af þremur mörkum var klaufaskapur eins og við vorum byrjendur. Miðjumennirnir leyfðu mönnum að komast inn í teiginn, og horfðu á eins og þær voru í bíó, kannski var pælingin að fara í bíó eftir leikinn. Hver veit?," sagði Theodór í samtali við Fotbolti.net.
Fjölnir kom sterkari í síðari hálfleikinn í kvöld, og reyndu sitt besta til að búa til færi, en voru ekki að skapa sér mörg.
,,VIð töluðum saman í hálfleik og ætluðum að gera betur. Við vorum ekkert verri í fyrri hálfleik við vorum að spila fótbolta, og Stjarnan var að stinga boltanum og við reyndum að loka á það. Þrjú ódýr mörk í kvöld, náðum ekki skapa færi við markið og fáum ekki nægilega mörg færi heldur."
Fjölnir hafa núna aðeins náð 5 stigum á tímabilinu og sitja neðstar með aðeins einn sigurleik og tvo jafnteflis, en hins vegar tapað átta leikjum.
,,Við vissum að þetta yrði strembið. Missum þrjá sterka leikmenn í Stjörnuna fyrir tímabilið og var það algjör blóðtaka þannig við verðum að byggja upp liðið Við verðum að treysta á Fjölnismennina og tímabilið er ekki nærri því búið," sagði hann enn fremur.
Næsta verkefni er gegn Íslandsmeisturunum í Val, og verður það vægast sagt erfiðasta verkefni sumarsins.
,,Valsararnir eru með frábært lið og þvílíka breidd. Ég var aðstoðarþjálfari Valsara á síðustu tveimur tímabilinu þannig maður kannast við liðið, en við förum í hann til að berjast og láta finna fyrir okkur og komum þar til að vinna," sagði Theodór að lokum.



