,,Þetta er enn einn markaleikurinn hjá Aftureldingu," grínaðist Gareth O'Sullivan í samtali við Fótbolta.net eftir 1-0 sigur liðsins á Fylki í Landsbankadeild kvenna í kvöld en liðið hefur varist vel í sumar og er með heildarmarkatölu 6-11 úr fyrstu 11 leikjum deildarinnar.
,,Við skutum tvisvar í slá í fyrri hálfleik og áttum svo tvö góð tækifæri í byrjun síðari hálfleiks en þetta virtist ætla að enda sem einn af þessum dögum þar sem okkur tækist ekki að skora. En við gerðum breytingar sem gerðu liðinu gott og svo kom góð sending fyrir og vel klárað."
,,Tempóið var gott í dag en við þurfum að vera duglegri að finna samherja og vera fljótari að skjóta og skjóta oftar. Við notuðum margar sendingar í kvöld en við hefðum átt að sækja meira. En við sköpuðum okkur tækifæri en í lokasendingunum eða þegar þurfti að klára tókum við ekki réttar ákvarðanir."
Á þriðjudaginn í síðustu viku tapaði liðið 0-3 fyrir Breiðablik í Kópavoginum en nú snerist dæmið við og Afturelding tók öll stigin á heimavelli.
,,Við áttum mjög slæma viku í síðustu viku og verðskulduðum ekkert úr henni. En við einbeitum okkur að því jákvæða úr leiknum í kvöld, við fengum þrjú stig og þær lögðu hart að sér. Það er það sem skiptir máli að fá þrjú stig."
Framundan verða erfiðir leikir hjá Aftureldingu sem mætir spútnikliði Stjörnunnar í næsta leik og svo toppliði Vals.
,,Við eigum leik gegn Stjörnunni í næstu viku og ég hlakka til hans því við töpuðum fyrir þeim í síðustu tveimur viðureignum. Svo eigum við Val næst eftir það. Vonandi fáum við eitthvað úr þeim leikjum, það verður erfitt en sjálfstraustið er allavega gott núna. Það var mikilvægt að fá þrjú stig því við höfum ekki fengið þrjú síðan í Keflavíkur leiknum."
Afturelding er með þrjá leikmenn sem liðið fékk frá Val í félagaskiptaglugganum, Andreu Ýr Gústavsdóttur, Önnu Garðarsdóttur og Maríu Rós Arngrímsdóttur og Valur fékk Sophia Mundy frá Aftureldingu. Fá þær að spila innbyrðis leikinn?
,,Það er heiðursmannasamkomulag, Sophie mun ekki spila gegn okkur og þær munu ekki spila gegn Val. En við erum með góðan hóp núna. Við veittum Val góða mótspyrnu í fyrri leiknum og reynum að gera það aftur."



