Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 10:16
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
Benjani missir af byrjun tímabilsins
Benjani framherji Manchester City mun missa af byrjun tímabilsins vegna meiðsla á læri.

Benjani meiddist á æfingu á dögunum og City gæti nú lent í framherja vandræðum í upphafi tímabils. Jo, sem er nýkominn til liðsins, er á leið á Ólympíuleikana með Brasilíu og þá eru Bernado Corradi og Rolando Bianchi líklega á förum.

Darius Vassell og Valeri Bojinov eru þá einu framherjarnir sem eru eftir hjá City og svo gæti farið að Mark Hughes stjóri liðsins fari á markaðinn og reyni að kaupa framherja en hann hefur verið orðaður við Craig Bellamy, Roque Santa Cruz og Djibril Cisse.

,,Benjani endaði síðasta tímabil nokkuð vel og það er synd þegar svona hlutir gerast," sagði Mark Hughes stjóri Manchester City.

,,Þú lendir alltaf í einhverjum meiðslum á undirbúningstímabilinu en þú vonar að þau séu minni þannig að leikmaður geti komist yfir þau. Því miður er þetta aðeins meira en það," bætti Hughes við.
Slapp
banner
banner
banner