Heimild: BBC
Þá er komið að slúðrinu úr ensku blöðunum á þessum fína miðvikudegi. Kíkjum á slúðrið en það er tekið saman með hjálp BBC.
Robinho og Didier Drogba gætu verið á faraldsfæti. Robinho gæti farið til Chelsea á 25 milljónir punda en Drogba gæti farið til Barcelona. (Daily Mirror)
Frank Lampard hefur verið boðinn metsamningur hjá Chelsea. Samningurinn er til fimm ára og launin eru 39 milljónir punda en Lampard gæti orðið launahæsti breski fótboltamaðurinn ef hann samþykkir þennan samning. (Ýmsir miðlar)
Manchester City er að íhuga tilboð í Craig Bellamy framherja West Ham eftir að í ljós kom að Benjani mun missa af byrjun tímabilsins. (Independent)
Manchester City gæti einnig reynt að fá Djibril Cisse óvænt frá Marseille. (Daily Mirror)
Þá er Mark Hughes stjóri City sagður ætla að bjóða fimmtán milljónir punda í Roque Santa Cruz framherja Blackburn. (Ýmsir miðlar)
West Ham hefur einnig áhuga á Cisse. Félagið hefur fengið þau skilaboð frá Marseille að ganga þurfi frá kaupum innan tíu daga en verðmiðinn er átta milljónir punda. (Daily Star)
West Ham mun kaupa Valon Behrami miðjumann Lazio á fimm milljónir punda í dag. (The Independent)
Roy Hodgson stjóri Fulham ætlar að kaupa Andy Johnson framherja Everton á 10,5 milljónir punda (Ýmsir miðlar)
Kevin Keegan stjóri Newcastle hefur boðið fimm milljónir punda og Charles N'Zogbia í skiptum fyrir Aiden McGeady kantmann Celtic. (The Sun)
Aston Villa ætlar að reyna að fá Younes Kaboul varnarmann Tottenham á fimm milljónir punda og stela honum þannig fyrir framan nefið á Sunderland. (Daily Mirror)
Steve Bruce stjóri Wigan ætlar að bjóða þrjár milljónir punda í Jimmy Bullard og fá hann þannig aftur til félagsins frá Fulham. (Daily Mirror)
Paul Ince stjóri Blackburn er við það að fá Carlos Villenueva. (The Sun)
Marton Fulop markvörður Sunderland gæti verið á leið til Stoke City á sex milljónir punda. (Daily Express)
Birmingham hefur sagt QPR að gleyma þeim möguleika að fá varnarmanninn Martin Taylor þar sem hann á að vera lykilmaður í að hjálpa liðinu aftur upp í ensku úrvalsdeildina. (Daily Mirror)
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United hefur skotið á Luiz Felipe Scolari stjóra Chelsea og sagt að hann eigi enga mögleika á að gera sömu hluti og Jose Mourinho gerði á Stamford Bridge. (Daily Mirror)
Fabio Cannavaro varnarmaður Real Madrid er að reyna að sannfæra Cristiano Ronaldo um að koma til félagsins en þeir urðu vinir þegar þeir voru saman í sumarfríi á ítölsku eyjunni Capri. (The Sun)
Kolo Toure varnarmaður Arsenal gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að hann fékk Malaríu í heimalandi sínu, Fílabeinsströndinni. (The Sun)
Eduardo framherji Arsenal, sem fótbrotnaði illa í febrúar, hefur meiðst aftur og verður frá í tvo mánuði í viðbót. (Daily Telegraph)

