Heimild: Sky
Galatasaray hefur fengið varnarmanninn Fernando Meira frá Stuttgart.
Meira, sem er þrítugur Portúgali, hefur skrifað undir þriggja ára samninng hjá tyrkneska félaginu.
Búist var við að Meira fengi að fara frá Stuttgart eftir að Khalid Boulahrouz kom til félagsins frá Chelsea.
,,Við viljum þakka Fernando fyrir sex og hálft ár í treyju VfB (Stuttgart) og viljum óska honum alls hins besta í framtíðinni í Tyrklandi," sagði Horst Heldt yfirmaður íþróttamála hjá Stuttgart.


