Víkingur Ólafsvík hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi átök í fyrstu deildinni því félagið hefur fengið Hermann Geir Þórsson frá HK.
,,Ég talaði við Rúnar (Pál Sigmundsson) þjálfara og ég er ekkert inni í svakalegum plönum hjá honum varðandi framtíðina og þá verður maður að róa á önnur mið," sagði Hermann Geir við Fótbolta.net í dag en hann hefur verið leystur undan samningi hjá HK.
Þessi örvfætti leikmaður er uppalinn á Ólafsvík og skoraði þrjú mörk í sextán leikjum með liðinu í fyrstu deildinni sumarið 2005.
Í kjölfarið gekk hann til liðs við HK og hefur leikið með Kópavogsliðinu þá að undanskildum nokkrum vikum í fyrra þegar hann var á láni hjá Víkingi og lék sex leiki.
Í sumar hefur Hermann Geir leikið tíu leiki með HK, síðast gegn Breiðablik í elleftu umferð. Þá fékk hann rauða spjaldið og var því í leikbanni gegn FH í síðustu umferð.
Hermann Geir er nú þegar búinn að fá félagaskipti í Víking og getur því leikið með liðinu gegn Njarðvík í fyrstu deildinni á morgun.


