Heimild: Sky
Pascal Chimbonda leikmaður Tottenham er nú í læknisskoðun hjá Sunderland samkvæmt heimildum Sky.
Ef að allt gengur að óskum í læknisskoðun Chimbonda mun hann skrifa undir fjögurra ára samning við Sunderland.
Hann hefur verið að ræða við Roy Keane stjóra liðsins undanfarið og hefur hrifist af honum.
Sunderland gerði Tottenham tilboð í þá Chimbonda, Teemu Tainio, Younes Kaboul og Steed Malbranque og vonast Keane til að fá þá alla.

