Heimild: BBC
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United telur að Chelsea muni ekki ógna liðinu mikið á komandi tímabili en Skotinn segist hræðast Arsenal og Liverpool meira í baráttunni um enska meistaratitilinn.
,,Chelsea er reynslumikið lið og ég sé ekki miklar framfarir frá liði sem er í kringum þrítugasaldurinn," sagði Ferguson en hann er þessa stundina í Suður-Afríku þar sem Manchester United er í æfingaferð.
,,Ég myndi ekki afskrifa Liverpool eða Arsenal. Það er ljóst hvað Arsenal afrekaði á síðustu leiktíð."
,,Þeir lentu í meiðslum á slæmum tíma, í febrúar misstu þeir stóran hlutan af miðjunni hjá sér. Hver segir að þeir hefðu ekki verið nær þessu ef Arsene Wenger hefið haldið sínum mönnum heilum?"
Chelsea hefur fengið Jose Bosingwa og Deco til liðs við sig í sumar en Ferguson telur að það verði erfitt fyrir Luiz Felipe Scolari, nýráðinn stjóra félagsins að bæta árangur undanfarinna ára með nánast sama leikmannahóp.
,,Ég hef ekki áhyggjur af Chelsea. Ég veit hreinlega ekki hversu langt þetta lið getur farið," sagði Ferguson meðal annars.



