Stjarnan hefur fengið til Birgir Hrafn Birgisson miðjumann úr Augnablik í sínar raðir.
Birgir sem er 22 ára gamall hefur verið að spila með Augnablik í sumar en á síðustu leiktíð lék hann með Víking Ólafsvík.
Birgir lék 11 leiki með Víkingum síðasta sumar en árið 2005 lék hann tvo leiki með Breiðablik í 1. deildinni.
Bjarni Jóhansson þjálfari Stjörnunnar er ekki óvanur því að vinna með Birgi en þeir unnu saman hjá Breiðablik þegar Bjarni var við stjórnvölinn þar.
Hann er þriðji Blikinn sem gengur í raðir Stjörnunnar á þessari leiktíð en fyrir eru þeir Kári Ársælsson og Ellert Hreinsson sem leika nú með liðinu.



