Ekki víst hvort hún spili gegn Breiðabliki á sunnudag
Embla Grétarsdóttir leikmaður KR meiddist í leik liðsins í gærkvöldi gegn Þór/KA þegar hún lenti í slæmri tæklingu í byrjun seinni hálfleiks. Embla þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðslanna og er óvíst hversu alvarleg meiðslin eru að svo stöddu.
,,Eins og er veit ég voðalega lítið hversu alvarleg meiðslin eru. Ég lenti bara í slæmri tæklingu og get varla stigið í fótinn núna” sagði Embla um meiðslin.
Næsti leikur KR er gegn Breiðabliki á sunnudaginn og er óvíst hvort Embla verði orðin klár í slaginn þá.
,,Ég veit hreinlega ekki hversu alvarlegt þetta er, ég fer til sjúkraþjálfara á eftir og við metum þetta svolítið þá. Það er óttast um liðbönd en ég vona svo sannarlega að þetta lagist á næstu dögum” sagði Embla að lokum í samtali við Fótbolta.net í dag
Það er ljóst að KR-ingar hafa lent í miklum skakkaföllum fyrir leikinn gegn Blikum þar sem Katrín Ómarsdóttir lenti í bílslysi eins og við greindum frá í dag og er ekki víst hvort hún spili. Ólína G. Viðarsdóttur verður síðan í leikbanni þar sem hún fékk að líta rauða spjaldið í gærkvöldi og nú er óvíst hvort að Embla verði með.



