Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 14:01
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Valon Behrami til West Ham (Staðfest)
West Ham hefur fengið svissneska landsliðsmanninn Valon Behrami frá Lazio á fimm milljónir punda.

Behrami, sem er 23 ára hefur gert fimm ára samning við félagið.

Behrami var í byrjunarliði Svisslendinga í öllum leikjum liðsins á EM en hann getur spilað bæði í hægri bakverði og á hægri kantinum.

Nokkur félög í Englandi og Þýskalandi hafa sýnt Behrami áhuga en West Ham hefur nú unnið kapphlaupið um hann.

West Ham hefur sagt að þrátt fyrir kaupin á Behrami þá sé Lucas Neill fyrirliði liðsins ekki á förum.
Slapp
banner
banner
banner