Stuðningsmenn Hauka munu hittast á Ásvöllum klukkan 18:00 í dag til að hita upp fyrir leik liðsins gegn Fylki í 8-liða úrslitum VISA-bikarsins en leikurinn hefst klukkan 19.15 á Ásvöllum.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur og djús á Ásvöllum, andslitsmálingu og svo mun trommusveitin sem kallar sig, Barry Manilow með lukkudýrinu Hörpu Melsteð fremst í flokki hita alla upp með söngvum fyrir leikinn.
Öllum Hafnfirðingum er velkomið að mæta á Ásvelli í dag, enda eru Haukar eina liðið sem eftir er í bikarnum úr Hafnarfirði.





