Heimild: Sky
Edu leikmaður Valencia segir að hann hafi fengið nokkur tilboð frá félögum í ensku úrvalsdeildinni.
Hann ætlar sér þó að sanna sig hjá Valencia en hann gekk í raðir félagsins frá Arsenal árið 2005.
,,Ég hef fengið nokkur tilboð frá Englandi af því fólk veit að ég hef náð mér af meiðslum en ég vil vera áfram hjá Valencia og ná árangri hér," sagði Edu.
,,Ég vil ekki hugsa um neitt annað en Valencia, ég æfði sjálfur í fríinu og ég er spenntur fyrir þessari leiktíð."




