Grannaslagir í neðri deildunum
Það er fullt af athyglisverðum leikjum hér á landi í kvöld. 8-liða úrslitin í VISA-bikar karla eru á dagskrá og þar eru forvitnilegir slagir.
Keflavík, topplið Landsbankadeildarinnar, heimsækir Breiðablik, KR og Grindavík mætast í annað sinn í vikunni, 1.deildarlið Hauka fær Fylki í heimsókn og Víkingur R. annað lið úr fyrstu deild, fer í heimsókn í Grafarvoginn og mætir Fjölni.
Í fyrstu deild karla tekur topplið ÍBV á móti Þór, Njarðvík fær Víking Ólafsvík í heimsókn og Leiknir R. mætir Selfyssingum sem eru í öðru sætinu.
Í annarri deild karla hefst ellefta umferðin þar sem Víðir Garði og Reynir Sandgerði mætast í grannaslag og Hamarsmenn taka á móti Gróttu.
Tveir leikir eru í þriðju deild karla. Árborg og Ægir mætast í Suðurlandsslag og í Fagralundi mætast Ýmir og Auganblik í Kópavogsslag.
Þá mætast Sindri og Fjarðabyggð/Leiknir í fyrstu deild kvenna. Allir á völlinn!
VISA-bikar karla:
19:15 Fjölnir - Víkingur R. (Fjölnisvöllur)
19:15 Breiðablik - Keflavík (Kópavogsvöllur)
19:15 KR - Grindavík (KR-völlur)
19:15 Haukar - Fylkir (Ásvellir)
1. deild karla:
20:00 ÍBV - Þór (Hásteinsvöllur)
20:00 Njarðvík - Víkingur Ó. (Njarðvíkurvöllur)
20:00 Leiknir R. - Selfoss (Leiknisvöllur)
2. deild karla:
20:00 Hamar - Grótta (Grýluvöllur)
20:00 Víðir - Reynir S. (Garðasvöllur)
3. deild karla A riðill:
20:00 Árborg - Ægir (Selfossvöllur)
3.deild karla C riðill:
18:00 Ýmir - Augnablik (Fagrilundur)
1. deild kvenna B riðill:
20:00 Sindri - Fjarðabyggð/Leiknir (Sindravellir)




