Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   mið 23. júlí 2008 20:55
Davíð Örn Atlason
BEINT: Valur 0-1 Bate
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 0-1 BATE Borisov
0-1 Igor Stasevich ('1)



21:01: Leik lokið.

20:59: Gestirnir með vel útfærða sókn, sem endar með skoti sem að Kjartan ver mjög vel.

20:54: Valsmenn í ágætis sókn. Baldur Ingimar Aðalsteinsson fékk boltann og tók við honum, lagði síðan út á Bjarna Ólaf eiríksson, sem átti skot rétt framhjá markinu.

20:41: BATE menn með fyrsta almennilega færi seinni hálfleiksins. Mikhail Sivakov fékk boltann inn í teig og átti skot sem að Kjartan Sturluson varði ágætlega.

20:28: Nákvæmlega ekkert að gerast, BATE menn bara sáttir við stöðuna og Valsmenn eru ekki að skapa neitt.

20:15: Seinni hálfleikurinn er hafinn.

20:01: Hálfleikur kominn og nánast ómögulegt núna fyrir Valsmenn að komast áfram.

19:59: Helgi Sigurðsson aftur í færi. Nú var hann með mann í bakinu og náði síðan skoti sem að Sergei Vermko varði í horn.

19:54: Ekki mikið í gangi eins og er, en Valsmenn eru að taka aðeins við sér.

19:38: BATE eru töluvert betra liðið á vellinum eins og er. Hafa ekki átt mörg færi, eneru samt líklegri aðillinn.

19:24: Valsarara í prýðis færi. Helgi Sigurðson fékk knöttinn inn fyrir og átti skot, sem að markvörður BATE varði og þaðan fór knötturinn til Hafþórs Ægirs Vilhjálmssonar, en færið var of þröngt og gestirnir náðu að bjarga.

19:15: MARK! Valsmenn byrja með boltann, en liðsmenn BATE ná honum strax og Vitali Rodionov keyrði upp hægri vænginn. Hann átti sendingu fyrir markið og Igor Stasevich kom á ferðinni og hamraði boltanum í netið þegar að 49 sekúndur voru liðnar.

19:15 Leikurinn er hafinn.

18:51: Byrjunarliðin eru klár.
Þrjár breytingar eru á liði Valsara frá því í síðasta leik gegn Keflavík. Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Baldur Bett og Baldur Ingimar Aðalsteinsson koma inn fyrir Pálma Rafn Pálmason, sem er farinn til Stabek, Sigurbjörn Hreiðarsson, sem er í banni, og Barry Smith.

Valur: Kjartan Sturluson (M), Atli Sveinn Þórarinsson, Baldur bett, Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Helgi Sigurðsson, Einar Marteinsson, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, René Carlsen, Bjarni Ólafur Eiríksson, Rasmus Hansen.
Varamenn: Ágúst Garðarsson, Barry Smith, Gunnar Einarsson, Baldur Þórólfsson, Geir Brynjólfsson, Guðmundur Benediktsson, Albert Brynjar Ingason.

BATE: Sergei Vermko (M), Dimitri Likhtarovic, Sergei Sosnovski, Sergei Kruvets, Anri Khagush, Maksim Zhaverchik, Mikhail Sivakov, Vitali Rodionov, Igor Stasevich, Vladimir Rzhevskiy, Aleksandr Yurevich.
Varamenn: Aliaksandr Hutar, Maksim Skavysh, Pavel Nekhaychik, Anton Sakharov, Aliakesei Viskushenko, Vitali Kazantsev, Yury Ryzhko.

18:50: Góða kvöldið og velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og BATE Borisov í undankeppni Meistaradeildar Evrópu.

Fyrri leikur þessara liða fór fram í Hvíta-Rússlandi og endaði hann með 2-0 sigri BATE og því róðurinn erfiður fyrir Valsmenn.
Slapp
banner
banner