Jóhann Birnir Guðmundsson er genginn í raðir Keflavíkur að nýju en hann kemur frá Gais í Svíþjóð. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Keflavík í K-Húsinu í Keflavík á áttunda tímanum í kvöld.
Jóhann Birnir er þrítugur og lék með Víði Garði og síðan Keflavík á sínum yngri árum. Hann fór síðan í atvinnumennsku árið 1997.
Undanfarin tvö tímabil hefur hann leikið með GAIS en þar áður var Jóhann á mála hjá Watford, Lyn og Örgryte.
Eins og við greindum frá í morgun kemur hann til Keflavíkur án greiðslu.
Hann hefur leikið 8 landsleiki fyrir Íslands hönd á árunum 1997-2004.
Hann verður í leikmannahópnum hjá Keflavík er liðið mætir Breiðablik í VISA-bikarnum á morgun.




