Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 22:02
Davíð Örn Atlason
Umfjöllun: BATE kláraði Val á 49 sekúndum
Valur 0-1 BATE Borisov (0-3 samanlagt)
Hafþór Ægir Vilhjálmsson í baráttu
Hafþór Ægir Vilhjálmsson í baráttu
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Baldur Bett með knöttinn
Baldur Bett með knöttinn
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
René Carlsen á sprettinum
René Carlsen á sprettinum
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
0-1 Igor Stasevich ('1)

BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi mætti á Vodafone völlinn í kvöld þar sem að þeir mættur heimamönnum í Val. Þetta var seinni leikur liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu, en sá fyrri endaði með 2-0 sigri BATE.

Valsmenn voru því í slæmri stöðu fyrir leikinn og ekki varð hún betri eftir 49 sekúndur, þegar að BATE menn skoruðu eina markið í vægast sagt daufum leik.

Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals gerði þrjár breytingar á liðinu frá því í jafnteflisleik gegn Keflavík í deildinni á sunnudaginn var. Pálmi Rafn Pálmason er genginn í raðir Stabek og var því ekki með og þeir Barry Smith og Guðmundur Benediktsson voru settir á bekkinn. Inn fyrir þá komu þeir Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson og Baldur Bett.

Eins og áður sagði þá skoruðu liðsmenn BATE eftir aðeins 49 sekúndna leik og þar var að verki hvít-rússnenski leikmaðurinn Igor Stasevich. Valsmenn hófu leikinn og gestirnir náðu til boltans og sentu boltann yfir á Vitali Rodionov á hægri kantinum. Rodionov kom með sendingu inn í teig og þar var Stasevich, hann hitti hann fullkomlega og boltinn fór niður í vinstra fjærhornið.

Evrópudraumurinn var úti eftir þetta og Valsmenn voru meðvitaðir um það, enda lítill möguleiki á því að skora fjögur mörk á þessum mínútum sem voru eftir gegn sterku liði BATE.

Þeir fengu þó ágætis færi um tíu mínútum eftir markið, Helgi Sigurðsson fékk þá boltann í vítateignum náði skoti að marki sem að Sergei Vermko varði út á Hafþór Ægi Vilhjálmsson sem að var nærri því að skora mark.

Leikurinn fór í frekar mikla lægð, Valsmenn búnir að gefa upp vonina og BATE menn sáttir með gang mála. Lítið gerðist fyrir hálfleik, nema Helgi Sigurðsson átti ágætis tilraun að marki BATE, sem markvörðurinn varði í horn.

Þannig að hálfleikstölur voru 0-1 fyrir BATE og 0-3 í heildina séð.

Ef að það yrði gefin einkun fyrir skemmtanagildi leiksins á skalanum 0-10 þá myndi hann fá um 2,5 því nákvæmlega ekkert var að gerast.

Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki fyrr en þegar að rúmar tíu mínútur voru til leiksloka. Þá áttu Valsmenn fína sókn, Baldur Ingimar Aðalsteinsson tók við knettinum og lagði út á Bjarna Ólaf Eiríksson, sem að hamraði boltanum rétt framhjá.

BATE menn áttu síðan eitt prýðis færi, sem að Kjartan Sturluson varði með tilþrifum. En ekki var það meira á Vodafonevellinum, mjög bragðlítill leikur og markið í byrjun drap hann gjörsamlega.

Eftir sigurinn í dag eru BATE komnir í næstu umferð og þar mæta þeir hollenska liðinu Anderlecht.

Valsarar eru hinsvegar aðeins eftir í einni keppni, deildinni. Þar eru þeir í fimmta sæti og eiga leik gegn Grindvíkingum á sunnudaginn kemur.

Valur (4-5-1):Kjartan Sturluson -, Rasmus Hansen, Atli Sveinn Þórarinsson, Einar Marteinsson, René Carlsen -, Baldur Bett, Baldur Ingimar Aðalsteinsson, Bjarni Ólafur Eiríksson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson (Baldur Þórólfsson '87) -, Helgi Sigurðsson (Albert Brynjar Ingason '68).
Ónotaðir varamenn: Ágúst Garðarsson, Barry Smith, Gunnar Einarsson, Geir Brynjólfsson, Guðmundur Benediktsson.

BATE (4-4-2):Sergei Vermko -, Anri Khagush, Vladimir Rzhevskiy (Vitali Kazantsev '80), Sergei Sosnovski, Aleksandr Yurevich -, Maksim Zhaverchik, Mikhail Sivakov, Dimitri Likhtarovic, Igor Stasevich (Pavel Nekhaychik '74) -, Vitali Rodionov (Maksim Skavysh '72), Sergei Kryvets.
Ónotaðir varamenn: Aliaksandr Hutar, Anton Sakharov, Aliakesei Viskushenko, Yury Ryzhko.

Aðstæður: Völlurinn fínn og ágætis veður, smá úði.
Maður leiksins: Mikhail Sivakov (BATE)
Dómari: Hannes Kaasik (Eistlandi)
Áhorfendur: 477.

Slapp
banner
banner