Stjórn Knattspyrnudeildar Njarðvikur ákvað í dag að rifta samningi sínum við Helga Arnarson þjálfara meistaraflokks karla en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
,,Stjórn deildarinnar vill þakka Helga Arnarsyni fyrir bestu þakkir fyrirr störf hans fyrir deildna á sl. tveimur keppnistímabilum og óskar honum farsældar og gæfu á komandi árum," segir á heimasíðu Njarðvíkinga.
Við þjálfarastarfinu tekur gamli refurinn Marko Tanasic en hann hóf störf í kvöld og mun stýra Njarðvíkingum gegn Víkingi Ólafsvík í fyrstu deildinni annað kvöld.
Tanasic lék lengi vel með Keflvíkingum og þjálfaði síðan KS og síðar KS/Leifur frá 2002-2006.
Í fyrrasumar þjálfaði Tanasic síðan annan flokk karla hjá Keflavík.
Njarðvíkingar eru sem stendur með sex stig í neðsta sæti fyrstu deildarinnar en liðið mætir Víkingi Ólafsvík annað kvöld eins og fyrr segir.



