Heimild: Sky
Inter Milan hefur sent fyrirspurn í Sulley Muntari leikmann Portsmouth samkvæmt heimildum Sky Sports News.
Þessi miðjumaður frá Ghana gekk í raðir Portsmouth fyrir síðustu leiktíð frá Udinese og stóð sig vel.
Hann hefur verið orðaður við Juventus en nú ætlar Inter að reyna að fá hann í sínar raðir.
Harry Redknapp stjóri Portsmouth sagði fyrr í vikunni að hann hefði ekkert heyrt frá Inter og að hann vildi halda Muntari á Fratton Park.




