Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   mið 23. júlí 2008 22:59
Magnús Már Einarsson
Brann tapaði 8-0 í norska bikarnum
Kristján Örn og félagar vilja væntanlega gleyma leiknum í kvöld sem fyrst.
Kristján Örn og félagar vilja væntanlega gleyma leiknum í kvöld sem fyrst.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson
Molde burstaði norsku meistarana í Brann óvænt 8-0 í norska bikarnum í kvöld.

Mame Biram Diouf og Magne Hoset fóru mikinn og skoruðu báðir þrennu fyrir Molde sem leiddi 3-0 í leikhlé.

Kristján Örn Sigurðsson og Ólafur Örn Bjarnason léku allan leikinn í vörn Brann.

Ármann Smári Björnsson og Gylfi Einarsson voru hins vegar báðir á bekknum en komu ekki við sögu.

Birkir Már Sævarsson kom til Brann frá Val á dögunum en hann hefur ekki ennþá fengið leikheimild og var því ekki með í kvöld.
Slapp