Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Viðtal - Þorkell Máni: Markmið að vera leiðinlegasta liðið
Kvenaboltinn
Þorkell Máni með viðurkenninguna.
Þorkell Máni með viðurkenninguna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorkell Máni á hliðarlínunni í síðasta leik Stjörnunnargegn Fjölni þar sem hann hafði starfað áður.
Þorkell Máni á hliðarlínunni í síðasta leik Stjörnunnargegn Fjölni þar sem hann hafði starfað áður.
Mynd: Fótbolti.net - Vilbogi M. Einarsson
Þorkell Máni leggur dómaranum línurnar í bikarleik á dögunum.
Þorkell Máni leggur dómaranum línurnar í bikarleik á dögunum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorkell Máni Pétursson þjálfari Stjörnunnar var valinn þjálfari 1. - 9. umferða í Landsbankadeild kvenna í sérstakri samantekt hér á Fótbolta.net er við gerðum upp fyrri hluta mótsins. Þorkell Máni tók við Stjörnunni fyrir þetta tímabil og á hans fyrsta ári er liðið í þriðja sæti deildarinnar og hefur aðeins tapað fyrir yfirburðarliðum Vals og KR.

,,Ég átti ekki von á þessu og þetta voru gleðileg tíðindi og mikill heiður fyrir okkar lið að fá viðurkenningu frá Fótbolta.net enda er það sá fjölmiðill sem fylgist hvað mest með kvennaknattspyrnunni," sagði Þorkell Máni í samtali við Fótbolta.net í gærkvöld.

Eftir að Þorkell Máni tók við Stjörnuliðinu hefur verið allt annar bragur á liðinu og fjöldi leikmanna vakið athygli fyrir frammistöðu sína í sumar sem og liðið í heild. En hvað er það sem hann gerði öðruvísi með liðið en fyrri þjálfarar?

,,Við breyttum nátturlega miklu ef ekki öllu," sagði Máni. ,,Stjörnuliðið var mikið í meiðslum í fyrra og í lélegu formi þannig að við réðumst svolítið í að breyta því. Helsti munurinn er samt kannski sá að það koma fleiri að þjálfun liðsins og við reynum að gera allt á sem bestan hátt og mögulegt er."

,,Við erum líka með frábært fólk í meistaraflokksráði sem hefur gríðarlega mikinn metnað fyrir þessu verkefni og það gerir alveg rosalega vel. Umgjörðin í kringum okkar lið er að verða sú besta í deildinni. Við erum með góða aðstöðu og allt til alls."


Þorkell Máni er þekktur úr útvarpi þar sem hann stýrir útvarpsþætti á X977. Þar er hann þekktur fyrir miklar og ákveðnar skoðanir og er í raun svolítill trúður eins og hann á það til að láta þar. Sem þjálfari hefur hann verið allt önnur persóna og því spurðum við hann hvernig hafi gengið að fá leikmenn sína til að átta sig á að hann væri maður sem mark væri takandi á fyrst eftir að hann tók við.

,,Stjörnustelpurnar eru vanar skrýtnum þjálfurum, ég man ekki betur en að einn fyrrum þjálfari Stjörnunnar af pissað í sig fyrir framan alla íslensku þjóðina," sagði Máni og vísaði til Huga Halldórssonar sem stýrði liðinu á síðari hluta síðustu leiktíðar. ,,En annars gekk það svo sem ágætlega fyrir sig. Var kannski erfitt á köflum þar sem ég er stundum með of svartan húmor sem alltof fáir virtust skilja. En nú eru þær búnar að læra að 90% af öllu sem ég segi er bull en hin 10% meika einhvern sens."

Stjarnan er fyrsta meistaraflokkslið sem Þorkell Máni þjálfar en áður hefur hann þjálfað yngri flokka hjá Fjölni, Haukum og Stjörnunni þar sem hann hafði hafið þjálfaraferil sinn fyrir tíu árum en síðast var hann hjá Fjölni. Hann segir mikinn mun að þjálfa meistaraflokk frá yngri flokkunum.

,,Já það er rosalega mikill munur og var stærra skref en ég bjóst við. Ég er alveg klár á því að ef ég hefði ekki notið liðsinnis og handleiðslu yfirþjálfara Stjörnunnar þá væri ég búinn að gera miklu miklu fleiri vitleysur en ég er nú þegar búin að gera. En ég hef verið duglegur að nýta með reynslu og visku mér reyndari manna.Sú hjálp hefur verið mér ómetanleg."

Eftir 11 umferðir er Stjarnan í þriðja sæti deildarinnar með leik til góða á næstu lið á eftir, hefur leikið 10 leiki. Liðinu hafði verið spáð 5. sæti í deildinni fyrir tímabilið og því þykir gengið hafa verið betra en búist var við. En er þessi staða um miðbik móts langt fram úr þínum vonum Mána eins og þær voru fyrir mót?

,,Já en ég hafði alveg hug á að komast í þessa stöðu og trú á því. En við byrjuðum mótið betur en ég bjóst við," sagði Máni en liðið vantar nú aðeins eitt stig til að hafa jafnmörg stig og allt mótið í fyrra. Máni segir liðið nálgast það stigamarkmið sem þær settu sér fyrir mótið.

,,Markmiðið var að vera leiðinlegasta liðið, liðið sem enginn vill mæta," sagði hann. ,,Við settum okkur stiga markmið og við erum að nálgast það. Við munum setja okkur ný markmið þegar og ef við náum þeim."

Félagaskiptaglugginn lokar hér á landi 31. júlí næstkomandi og því verður hægt að skipta um leikmenn út fimmtudaginn í næstu viku. Þorkell Máni hefur þegar lánað frá sér leikmann í glugganum en ætlar hann að gera eitthvað meira, fá til sín leikmenn eða fara fleiri?

,,Við erum að missa leikmenn það er klárt mál," svaraði hann. ,,Það eru tvær á leiðinni út og síðan mun ein til viðbótar missa af allavega tveimur næstu leikjum."

,,Við erum alltaf tilbúin að styrkja okkur eitthvað en það yrði þá að vera til frambúðar en ekki bara út tímabilið. Við erum ekki að tjalda til einnar nætur í Garðabænum. Það er ekki eins og það sé eitthvað Evrópu sæti eða gríðar há peninga summa milli 3. og 5. sætisins."

,,Stjarnan er búin að spila í efstu deild síðustu 15 ár við gerðum það ekki á með því að kaupa endalaust af mannskap. Við höfum meira og minna alið upp okkar mannskap og skapað nýja leikmenn í deildina og munum stefna á að gera það áfram. Við erum með nokkrar gríðarlega efnilegar stelpur í 2 og 3 flokk og ég á frekar von á að kalla þær inná en að fara í einhverjar skyndilausnir. "


Að lokum spurðum við Mána hvernig honum hafi þótt umfjöllun um Landsbankadeild kvenna hafa verið í sumar? ,,Ég er að mestu leiti ánægður með umfjöllunina. Fótbolti.net er líklega besta fréttaveitan um kvennaboltann. RÚV byrjaði síðan vel eins og þeim ber skylda til. En þeir hafa verið að gefa eftir upp á síðkastið. Annars held ég að allir séu að gera sitt besta," sagði Þorkell Máni að lokum við Fótbolta.net.
Slapp
banner