Heimild: BBC
Það er nóg af slúðri af leikmannamarkaðinum í dag eins og endranær. Kíkjum á það helsta úr ensku blöðunum.
Walter Smith stjóri Rangers á í viðræðum við Portsmouth um þann möguleika að fá Pedro Mendes. (Daily Record)
Dimitar Berbatov framherji Tottenham er á leið til AC Milan fyrir 25 milljónir punda en Spurs vill frekar að hann fari þangað heldur en til Manchester United. (The Sun)
Óvíst er hvort Brad Friedel fari til Aston Villa á 2,5 milljónir punda. Félagaskiptin velta á því hvort Paul Robinson fari til Villa. (The Sun)
Robinson mun líklega fara til Blackburn fyrir helgi. (The Times)
Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, óttast að hann muni ekki fara til Barcelona þar sem spænska félagið er ekki tlbúið að borga 37,5 milljónir punda fyrir leikmanninn. (The Sun)
David Moyes stjóri Everton mun fresta því að selja Andy Johnson til Fulham á tíu milljónir punda þangað til að hann finnur annan mann í staðinn. Johnson átti að spila æfingaleik á dögunum en hætti við á síðustu stundu við litla hrifningu Moyes. (Daily Star)
Moyes gæti reynt að fá Wagner Love framherja CSKA Moskvu á tuttugu milljónir punda. (The Sun)
Martin O'Neill segist ennþá vilja fá átján milljónir punda fyrir Gareth Barry en Liverpool er á eftir leikmanninum. (Daily Express)
Manchester City mun væntanlega ræða við Tal Ben-Haim á næstu tveimur dögum eftir að félagið bauð Chelsea fjórar milljónir punda fyrir leikmanninn. (The Times)
Roy Keane stjóri Sunderland ætlar að fá Aidan McGeady kantmann Celtic á sex milljónir punda. (Daily Mirror)
Hull hefur náð samkomulagi við Tottenham um 2,5 milljóna punda kaupverð á Anthony Gardner. (Daily Mirror)
Hull er einnig við það að kaupa miðjumanninn Seyi Olofinjana frá Wolves á tvær milljónir punda. (Daily Star)
Phil Brown, stjóri Hull, segir að það sé "90% klárt" að Marlon King komi frá Wigan. (The Guardian)
Paul Ince stjóri Blackburn er tilbúinn að bjóða sex milljónir punda í Jermaine Pennant en hann gæti þurft að hækka boð sitt. (The Sun)
West Ham ætlar að bjóða framherjanum Freddie Sears langtímasamning til að hann fari ekki til Arsenal eða Tottenham. (The Sun)
Carlos Tevez segir að Manchester United eigi að leyfa Cristiano Ronaldo að fara til Real Madrid. (The Times)
Paul Scholes, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Manchester United, ætlar að leggja skóna á hilluna eftir tvö ár. (Ýmsir miðlar)
Raul og Guti hafa greint frá því að þeir myndu taka Cristiano Ronaldo opnum örmum hjá Real Madrid. (Daily Mirror)
Launakostnðaur Chelsea gæti hækkað upp í 150 milljónir punda á ári. (The Times)
Dirk Kuyt framherji Liverpool hefur beðið Robbie Keane um að koma til félagsins. (Daily Star)
Manchester United og Portsmouth, sem mætast í æfingaleik í Nígeríu á sunnudag, munu taka töflur til að forðast það að fá Malaríu. (The Sun)


