KS/Leiftur hefur fengð sænska leikmanninn Christian Hemberg til liðs við sig.
Christian hefur leikið tæpa 100 leiki í Allsvenskan og meðal annars með Tryggva Guðmundssyni og Jóhanni Guðmundssyni hjá Örgryte.
Einnig á Christian að baki tvo leiki með A-landsliði Svíþjóðar, auk fjölda leikja með yngri landsliðum.
Christian er 26 ára gamall og var í vetur á mála hjá Raufoss í Noregi, en félagið varð gjaldþrota og leikmenn þess voru þar með leystir undan samningi, og er hann nú að leita sér að nýjum vinnuveitanda.
KS/Leiftur vinnur nú hörðum höndum að því að fá leikheimild með Christian fyrir leikinn gegn Stjörnunni í fyrstu deildinni annað kvöld.




