Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir munu stýra Skagamönnum gegn FH í Landsbankadeildinni á sunnudagskvöld. Þeir munu hins vegar ekki leika með liðinu.
Arnar og Bjarki tóku við Skagamönnum í byrjun vikunnar en þeir hættu á sama tíma sem leikmenn FH.
Samið hefur verið um að þeir fái ekki að leika með ÍA gegn FH-ingum.
,,Þetta er næsti leikur, það væri kannski annað ef þetta væri fjórði eða fimmti leikurinn. Fyrst þetta er strax næsti leikur þá skilur maður þetta vel," sagði Bjarki við Fótbolta.net í dag.
Bjarki býst hins vegar ekki við öðru en þeir fái að stjórna liðinu og því má búast við að tvíburabræðurnir verði á hliðarlínunni í leiknum á Akranesi á sunnudaginn.


