Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 12:45
Hörður Snævar Jónsson
Skagamenn búast við Bjarna í leiknum gegn FH
Bjarni í leik gegn FH á síðustu leiktíð en hér er hann í baráttunni við Arnar Gunnlaugsson.
Bjarni í leik gegn FH á síðustu leiktíð en hér er hann í baráttunni við Arnar Gunnlaugsson.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Bjarki Gunnlaugsson annar þjálfari Skagamanna á ekki von á öðru en að Bjarni Guðjónsson muni leik með liðinu gegn FH.

Valsmenn staðfestu í gær að þeir myndu reyna að fá Bjarna og þá hafa FH-ingar og KR-ingar einnig áhuga á honum.

Framtíð Bjarna hefur mikið verið rædd eftir að faðir hans, Guðjón Þórðarson hætti hjá félaginu fyrr í vikunni.

,,Við gerum ráð fyrir honum á sunnudaginn. Þangað til að annað kemur í ljós þá er hann leikmaður ÍA," sagði Bjarki í samtali við Fótbolta.net í dag.

Bjarni mætti ekki á fyrstu æfingu þeirra bræðra en hann var mættur galvaskur á æfingu í gærkvöldi.
Slapp
banner