Heimild: Heimasíða ÍA
Gömlu kempurnar Kári Steinn Reynisson og Pálmi Haraldsson hafa æft með ÍA í vikunni en þó er óvíst hvort þeir séu að fara að spila með liðinu.
Kári Steinn lagði skóna á hilluna í vetur eftir farsælan feril með ÍA en hann er þriðji leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi. Hann mætti hins vegar á æfingu í gærkvöldi.
,,Jú, það er rétt að ég mætti á mína fyrstu æfingu í gær með Skagamönnum og á nú töluvert langt í land með það að komast í gott form, en ég hef haldið mér í þokkalegur formu í vetur. En eins og staðan er núna þá er þetta fyrst og fremst hinum í hópnum til ánægju að njóta nærveru minnar," sagði Kári Steinn í léttum dúr við heimasíðu ÍA.
,,En ég vona að ég geti lagt mitt að mörkum fyrir liðið með einhverjum hætti innan tíðar," sagði Kári Steinn einnig.
Pálmi Haraldsson, sem á hátt í 500 leiki að baki með Skagamönnum, lagði skóna á hilluna eftir sumarið 2006.
Hann dustaði hins vegar rykið af skónum í fyrra og lék nokkra leiki með Kára í þriðju deildinni. Í vor fékk Pálmi aftur í félagaskipti í ÍA og hann hefur mætt á æfingar í vikunni.
,,Ég hef haldið mér í ágætis formi og er núna búinn að mæta á tvær æfingar og lýst bara vel á. Ég er ekki á samning við ÍA og geri þetta mér til skemmtunar og er ég búinn að ræða við þá Arnar og Bjarka og þeir hafa tekið mér fagnandi. En ég vona auðvitað að geti lagt mitt að mörkum fyrir liðið í þeirri baráttu sem framundan er," sagði Pálmi við heimasíðu ÍA.
,,Það væri fínt fyrir hópinn ef þeir væru tilbúnir að spila, við myndum ekki loka dyrunum fyrir það. Þeir yrðu að vera í standi og við sjáum strax á æfingum hvort þeir séu eitthvað nálægt hinum ef ekki," sagði Bjarki Bergmann Gunnlaugsson þjálfari ÍA við Fótbolta.net í dag.




