Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 16:12
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Hull að fá Anthony Gardner
Hull City hefur náð samkomulagi við Totttenham um að fá varnarmanninn Anthony Gardner láni þar til í janúar en þetta kemur fram hjá BBC.

Þessi 27 ára gamli leikmaður mun gangast undir læknisskoðun á morgun.

Gangi allt snuðrulaust fyrir sig þar má búast við að Gardner fari til Hull á næstu dögum.

Áhugi Hull á Gardner virtist hafa dvínað en þegar að Stoke fór að skoða leikmanninn ákvað Phil Brown stjóri Hull að láta til skarar skríða.

Gardner hefur leikið einn landsleik fyrir Englendinga, gegn Svíum árið 2004.
Slapp
banner