Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 17:33
Magnús Már Einarsson
Magni Grenivík fær annan Ungverja (Staðfest)
László Szilágyi í leik með Magna fyrr í sumar.
László Szilágyi í leik með Magna fyrr í sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Magni Grenivík úr annarri deild hefur fengið framherjann Laszlo Siket til liðs við sig.

Ungverskur miðjumaður, László Szilágyi, kom til Magna fyrir tímabilið og hefur leikið mjög vel með liðinu í sumar en nú mun landi hans einnig koma til Magna.

Laszlo Siket, er 23 ára, en hann kemur til landsins á sunnudag og verður því ekki kominn til landsins fyrir leik Magna og Aftureldingar á laugardag.

,,Upphaflega stóð til að hann kæmi fyrr en betra er seint en aldrei. Hann kemur á sunnudaginn og verður klár á miðvikudaginn á móti Hetti," sagði Atli Már Rúnarsson þjálfari Magna við Fótbolta.net en hann hrósar László Szilágyi fyrir frammistöðuna í sumar.

,,Hann er góður og er alltaf að verða betra og betra. Það tók smá tíma fyrir hann aðlagast. Fyrstu 3-4 leikina var hann við það að fara heim en síðan fór þetta að rúlla betur og hann fór að komast betur inn í þetta. Það verður gott fyrir hann að fá annan með sér," sagði Atli Már.
Slapp
banner