Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   fim 24. júlí 2008 16:20
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: BBC 
Capello: England verður mitt seinasta starf
Fabio Capello, þjálfari enska landsliðsins segir að þjálfun á landsliðinu verði hans seinasta starf í þágu fótboltans.

Capello, sem er 62 ára gamall skrifaði undir fjögurra ára samning við enska knattspyrnusambandið í janúar, en samningurinn verður líklega til skoðunar eftir HM í Suður-Afríku 2010.

,,Ég mun klára samning minn hjá Englandi, og eftir það þá hef ég ákveðið að hætta þjálfun, og verður því reynslan á Englandi mitt seinasta starf," sagði Capello við ítalska blaðið La Repubblica.

,,Hins vegar vill ég enda ferilinn með frábærum árangri á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku."

Þjálfunarferill Capello hefur verið ansi flottur í gegnum tíðina, en hann hefur þjálfað AC Milan, Roma, Inter Milan, Juventus, Real Madrid og nú enska landsliðið.
Slapp
banner
banner
banner