Hibernian 0 - 6 Barcelona
0-1 E. Gudjohnsen ('8)
0-2 L. Messi ('15)
0-3 E. Gudjohnsen ('17)
0-4 Pedrito ('27)
0-5 B. Krkic ('48)
0-6 Y. Toure ('69)
0-1 E. Gudjohnsen ('8)
0-2 L. Messi ('15)
0-3 E. Gudjohnsen ('17)
0-4 Pedrito ('27)
0-5 B. Krkic ('48)
0-6 Y. Toure ('69)
Börsungar hófu undirbúningstímabilið af miklum krafti þegar þeir mættu Hibernian í æfingaleik í Skotlandi í kvöld. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði hins nýja þjálfara Barcelona, Joseph Guardiola og stóð sig með stakri prýði og skoraði tvö mörk.
Alexander Hleb kom inn á um miðjan seinni hálfleik en Hvít-Rússinn snjalli var að leika sinn fyrsta leik fyrir Katalóníuliðið eftir komu sína frá Arsenal.
Næsti æfingaleikur Barcelona verður næstkomandi laugardag gegn Dundee United á heimavelli þeirra Tannadice Park.


