Magnús Páll fagnar að leik loknum ásamt Mareli Baldvinssyni, Arnar Grétarssyni og Guðmundi Kristjánssyni.
,,Þetta verður ekki sætara," sagði Magnús Páll Gunnarsson hetja Breiðabliks gegn Keflavík í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn. Magnús kom inná sem varamaður þegar tuttugu mínútur voru eftir og skoraði sigurmark leiksins þegar átta mínútur voru eftir í 3-2 sigri í VISA-bikarnum.
,,Ég var mjög ánægður með mína innkomu og gaman að vera í því hlutverki að tryggja liðinu sigur, það varð einhver að klára þennan leik og í þetta skiptið var það ég," sagði Magnús sem fannst liðið alltaf hafa góð tök á leiknum.
,,Mér fannst við alltaf hafa góð tök á leiknum, við vissum að Keflavík væri með gott lið, þeir eru góðir að dreifa boltanum og halda boltanum eins og við erum, þannig að fyrir fram mátti alveg búast við hörkuleik og jafnvel fullt af mörkum. Ég vil meina að við höfum verið grimmari frá upphafi og það skilaði þessum sigri."
Hann segist ekki hafa hræðst það að Keflvíkingar myndu ná að jafna leikinn undir lokinn. ,,Þótt furðulegt megi vera þá urðum við bara að sýna yfirvegun. Í svona færi eins og ég var í undir lokin þá er eins gott að maður tryggi að hann fari í netið."
Þetta var þriðja mark Magnúsar í tveimur leikjum en hann hefur mátt verma varamannabekkinn í nánast allt sumar. ,,Þetta gengur vel núna og það er mikil samkeppni í liðinu og Óli (Ólafur Kristjánsson) veit hvaða leikmenn hann hefur í byrjunarliðinu og á bekknum. Við erum að sýna fínan karakter, bæði þeir sem eru að byrja og þeir sem eru að koma inná, það eru allir að vinna fyrir liðið."
Hann segir ekkert annað koma til greina en að fara alla leið. ,,Við erum komnir alla leið í undanúrslit og það kemur ekkert annað til greina en að fara alla leið, ég vil fá sjá dolluna í höndunum," sagði Magnús Páll sigurreifur að lokum í samtali við Fótbolta.net.



