Hallgrímur Jónasson leikmaður Keflavíkur var vitanlega svekktur eftir að liðið datt út úr VISA-bikarnum en liðið tapaði 3-2 fyrir Breiðablik í kvöld.
,,Að sjálfsögðu er þetta mjög svekkjandi, mér fannst við vera þreyttir og smá einbeitingarleysi inn í teig undir lokin," sagði Hallgrímur svekktur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
,,Þetta var góður leikur, fullt af mörkum en því miður þá datt .þetta bara ekki fyrir okkur í dag," sagði Hallgrímur sem fannst spil liðsins of köflótt.
,,Við vorum að spila ágætlega á köflum en það voru of margar stundir í leiknum þar sem við erum að hanga á boltanum en stundum er þetta bara svona."
,,Við erum komnir í færi kannski tíu metra frá marki og eigum að skjóta að markið en erum í staðinn að klobba menn, við áttum bara að klára þetta," sagði Hallgrímur sem segir að liðið verði þó að rífa sig upp.
,,Það þýðir ekki að hugsa um það alltof lengi að það hafi verið svekkjandi að tapa í lokinn, við erum efstir í deildinni."
,,Við ætlum bara að vinna næsta leik og þá erum við ennþá efstir," sagði Hallgrímur að lokum í samtali við Fótbolta.net.




