,,Þetta var mjög sætt. Það var mjög erfitt að skora á þá, þeir voru ellefu inni á teig þannig að það var sterkt að ná markinu og vinna þennan leik," sagði Tómas Leifsson við Fótbolta.net eftir 1-0 sigur Fjölnis á Víkingi Reykjavík í kvöld en hann skoraði eina markið í leiknum.
,,Þeir fengu engin færi og við vorum bara þéttir og gerðum það sem þurfti. Við vissum að þetta yrði mikill varnarpakki fyrir framan okkur og það kom ekkert á óvart."
Tómas var ágengur í leiknum og hann fékk tvö önnur fín færi til að skora.
,,Ég fékk allavega tvo mjög góða sénsa í viðbót en það klikkaði í þetta skiptið. Ég kenni reyndar Óla Palla (Snorrasyni) um þetta, hann á að hitta betur á mig inni á teignum."
Fjölnismenn lögðu Fylki 2-1 í undanúrslitum Visa-bikarsins í fyrra en með Árbæjarliðinu leikur Víðir, bróðir Tómasar.
,,Það væri gaman að fá þá aftur, ég held að þeir væru alveg til í að fá okkur aftur en Af þessum þremur liðum sem við getum fengið þá eru öll mjög sterk og ég held að það skipti engu máli," sagði Tómas að lokum við Fótbolta.net.



