Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 22:35
Hörður Snævar Jónsson
Ólafur Kristjánsson: Meiri breidd en í fyrra og það skilar sér
Ólafur á hliðarlínunni í kvöld.
Ólafur á hliðarlínunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Ólafur fagnar að leik loknum ásamt aðstoðarmanni sínum og liðstjórum.
Ólafur fagnar að leik loknum ásamt aðstoðarmanni sínum og liðstjórum.
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfari Breiðabliks var að vonum sáttur með sína menn eftir að liðið lagði Keflavík 3-2 í átta liða úrslitum VISA-bikarsins í kvöld.

,,Hvernig sem leikurinn hefði farið þá hefði ég verið mjög hreykinn af liðinu því við spiluðum þennan leik vel frá upphafi til enda. Keflavíkur liðið er að mínu mati besta liðið í deildinni í dag og það var því gott að vinna þá hérna á heimavelli í dag," sagði Ólafur í samtali við Fótbolta.net eftir leikinn.

,,Mér fannst liðið vera að spila vel, í byrjun þá var smá taugaveiklun að koma sér inn í leikinn, þetta var leikur sem var búið að tala svolítið mikið um og menn svona búnir að vera að hugsa um þennan leik eftir sigurinn á Skaganum."

,,Þegar mesti skrekkurinn var farinn þá fannst mér við ná góðum takti, við vorum að verjast vel og sækja vel á þá en að sama skapi þá voru þeir líka að gera fína hluti."


Blikar virtust vakna þegar Guðjón Árni Antoníusson jafnaði leikinn en liðið hafði nokkra yfirburði það sem eftir lifði af fyrri hálfleiknum.

,,Markið hjá þeim var bara vel gert, einstaklings framtak og gott mark. Við vissum alveg að það væri ekki búið þótt við værum marki undir. Leikurinn hér í deildinni, þá var Keflavík 2-0 yfir og við jöfnuðum 2-2 þannig að við við vorum ekkert smeykir þótt að það hefði gerst."

Magnús Páll Gunnarsson kom af bekknum og skoraði sigurmarkið en mikil samkeppni er í framlínu liðsins.

,,Magnús kom aftur inná og skoraði í þessum leik og þeir sem voru búnir að vera inná voru búnir að vinna mikla forvinnu og hann nýtti sinn séns vel, það er miklu meiri breidd í Breiðabliks liðinu í ár en í fyrra og það skilar sér."

Blikar komust einnig í undanúrslit í fyrra en þá datt liðið út fyrir FH, Ólafur vill þó spara stóru orðin.

,,Í bikarnum þá hugsum við bara um einn leik í einu og sjáum hvað kemur upp úr hattinum og spilum þann leik þegar þar að kemur en við tökum deildina núna," sagði Ólafur að lokum í samtali við Fótbolta.net.
Slapp
banner
banner