Haukar 0 - 1 Fylkir:
0-1Kjartan Ágúst Breiðdal (105)
0-1Kjartan Ágúst Breiðdal (105)
1.deildarlið Hauka tóku á móti Landsbankadeildarliði Fylkis á gervigrasinu í Hafnarfirði í kvöld. Leikurinn var ágætis skemmtun þó að mörkin hafi ekki litið dagsins ljós. Þegar uppi var staðið og Kristinn Jakobsson búinn að flauta af eftir 120 mínútur var ljóst að Fylkismenn voru komnir í undanúrslitin, en Kjartan Ágúst Breiðdal skoraði eina mark leiksins í lok fyrri hálfleiks framlengingarnar.
Leikurinn byrjaði fremur rólega, Fylkismenn voru að reyna finna taktinn á umtöluðu gervigrasi Hauka. Gestirnir áttu fyrsta færi leiksins, en Allan Dyring slapp þá einn í gegn eftir misskilning í vörn Hauka en skot hans nokkuð frá marki Hauka.
Eftir þetta eina færi Fylkis virtist sem að Haukar ætluðu að rúlla yfir gestina. Því fyrsta færi Hauka kom mínútu síðar, Goran Lukic var þá komin í ákjósanlegt færi inn í vítateig Fylkis en missti boltann aðeins of langt frá sér og náði því ekki jafn góðu skoti og hann vildi, Fjalar gerði samt sem áður vel og varði boltann sem datt fyrir fætur Denis Curic sem skaut að marki Fylkis en í varnarmann fór boltinn og náðu gestirnir að bægja hættunni frá.
Á 20.mínútu fékk Denis svo aftur færi en að þessu sinni mun betra, upp úr þurru kom hár bolti frá Óla Jón Kristinssyni yfir vörn Fylkis og náði hinn sprettharði Denis boltanum og einn á móti Fjalari náði hann ekki að koma boltanum framhjá honum, Fjalar bjargaði þarna sínum mínum.
Fimm mínútum síðar komst Denis í enn eitt færið, hann kom sér í gott færi en skot hans með vinstri var varið frá Fjalari. Síðasta færi fyrri hálfleiksins átti Denis aftur, eftir varnarmistök hjá Ólafi Stígssyni náði Denis að stela boltanum af honum og í þann mund sem Denis ætlaði að skjóta á markið inn í teig gerði Ólafur vel og tæklaði aftan frá í boltann. Þetta átti greinilega ekki að vera dagurinn hjá Denis sem hefur verið sjóðheitur í 1.deildinni í sumar.
Staðan í hálfleik 0-0. Seinni hálfleikurinn byrjaði eins og sá fyrri, rólegur fyrst en svo áttu Fylkismenn fyrsta færi hálfleiksins, Jóhann Þórhallsson komst þá í ágætis skot færi en skot hans rétt framhjá.
Á 60.mínútu komst Jóhann Þórhallsson aftur í færi en nú ívið betra, hann var kominn í gegn inn í teig Hauka en Hilmar Trausti Arnarsson sem var með betri mönnum á vellinum í dag náði að renna sér fyrir boltann og bjargaði í horn.
Fylkismenn sóttu á þessum kafla mun meira en Haukarnir og áttu fleiri færi, en Haukarnir beittu löngu sendingum upp kantana sem skiluðu litlum árangri.
Á 70.mínútu komst Kjartan Ágúst Breiðdal líklegast í besta færi leiksins, eftir að hafa stolið boltanum af varamanninum Jónasi Bjarnassyni utan af kanti komst hann einn í gegn en skot hans ekki með besta móti og himinhátt fór boltinn. Skömmu síðar átti Allan Dyring skalla eftir fyrirgjöf frá vinstri en á eitthvern ótrúlegan hátt fór boltinn yfir.
Þetta var síðasta færi venjulegs leiktíma og því var ekkert að vanbúnaði en að vinda sér í framlengingu.
Fylkismenn byrjaði framlenginguna með því að fá gott færi, eftir fyrirgjöf frá hægri virtist sem að Ian Jeffs hafi fengið boltann í sig inn í markteig Hauka og þaðan að markinu en Amir var vel staðsettur í markinu og varði vel.
Fyrsta mark dagsins leit síðan dagsins ljós nokkrum mínútum síðar, en þá slapp Ian Jeffs innfyrir vörn Hauka og kláraði færið vel, en Jeffs var dæmdur rangstæður.
Mínútu síðar gerðist slíkt hið sama nema hinum megin á vellinum, Denis Curic komst þá einn innfyrir, lék á Fjalar og skoraði, en eins og fyrr segir dæmdur rangstæður.
Það voru hins vegar gestirnir sem skoruðu eina löglega mark leiksins en það var Kjartan Ágúst Breiðdal sem gerði það með síðustu snertingu fyrri hálfleiks framlengingunar. Kjartan gerði þá vel og sendi boltann í netið einn og óvaldaður inni í markteig Hauka eftir fyrirgjöf frá nafna sínum, Baldvinssyni. Staðan því orðin 0-1, eftir 105 mínútur.
Í seinni hálfleik héldu bæði lið áfram að sækja en Haukar fengu besta færið í þeim hálfleik en það var á 119 mínútu, en þá átti Marco Krisch sendingu inn í teig ætluðu Denis en Fjalar gerði vel og renndi sér og náði að handsama boltann á undan Denis. Þetta var síðasta tækifæri Hauka til að jafna leikinn.
0-1 sigur Fylkis staðreynd og eru því komnir í undanúrslit bikarsins annað árið í röð.




