Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   fim 24. júlí 2008 23:50
Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Guðjónsson líklega í KR - Valur og FH draga sig til baka
Bjarni Guðjónsson á KR-velli fyrr í sumar.  Hann mun væntanlega ganga í raðir félagsins.
Bjarni Guðjónsson á KR-velli fyrr í sumar. Hann mun væntanlega ganga í raðir félagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Allt bendir nú til þess að Bjarni Guðjónsson leikmaður ÍA sé að ganga í raðir KR því samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa Valur og FH dregið sig til baka úr kapphlaupinu að hreppa hann en tilboð KR í hann mun vera mjög gott.

Fótbolti.net greindi fyrstur miðla frá því aðfararnótt mánudags að Guðjón Þórðarson faðir Bjarna hafi verið rekinn frá ÍA og að Bjarni færi væntanlega líka frá félaginu.

Í kjölfar þess komst upp á yfirborðið að Valur, FH og KR hefðu áhuga á að fá Bjarna í sínar raðir og nú bendir allt til þess að hann fari til KR enda Valur og FH búin að draga sig til baka úr viðræðum.

Bjarni Guðjónsson er 29 ára gamall. Hann hóf feril sinn undir stjórn Loga Ólafssonar hjá ÍA og hittir hann því fyrir að nýju hjá KR.

Hann sneri heim úr atvinnumennsku fyrir tímabilið 2006 og átti frábær tímabil það ár og 2007. Meiðsli hafa aðeins háð honum í sumar en þó hafði hann spilað 10 leiki í Landsbankadeildinni og einn í bikar þetta tímabilið.
Slapp
banner
banner